Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Lífið í fimm hlutum: Góð skissubók inniheldur innkaupalista

$
0
0

Skissubækurnar

29482-una-01782
„Ég á heilan haug af eldgömlum skissubókum sem ég hef sankað að mér í gegnum tíðina. Þetta eru vinnubækur sem ég er alltaf með á mér og ég er með eina bók fyrir hvert verkefni sem ég er að vinna að. Þessar bækur eru mitt helsta vinnutól og ég skrifa allar hugmyndirnar mínar í þær. Bækurnar geta verið mismunandi en það mega alls ekki vera neinar rúður eða línur í þeim, og helst vil ég hafa þær með teygju og svo verða þær að vera sveigjanlegar.“
„Vinnubókin er besti vinur manns í vinnunni, sérstaklega í upphafi vinnunnar þegar maður er enn að reyna að ná utan um hugmyndirnar og hugsanirnar,“ segir Una sem byrjaði að nota hugmyndabækur löngu áður en hún byrjaði í leikstjórnarnámi. „Einu sinni heyrði ég sagt að góð skissubók innihéldi líka innkaupalista, því það þýðir að þú ert alltaf að nota hana.“

Kassinn

29482-leiksvid-01852
„Kassinn í Þjóðleikhúsinu er mér mjög kær en þar hef ég sett upp flestar mínar sýningar. Í vetur verð ég með tvær sýningar í Kassanum, Gott fólk og Tímaþjófinn. Mér þykir alveg sérstaklega vænt um þetta svið og þetta hús því þetta er í raun mitt annað heimili þegar ég er að vinna að sýningum,“ segir Una sem frumsýnir Ég vil frekar að Goya haldi fyrir mér vöku en einhver djöfulsins fáviti í Kúlunni í sama húsi um helgina. „Ég hef alltaf verið hrifin af litlum sviðum, nándinni við leikarann, því að sjá leikarann nánast anda og geta jafnvel náð augnsambandi við hann/hana. Það er eitthvað í þessu nána sambandi milli áhorfanda og leikara sem dregur mig að leikhúsinu. Mér finnst líka áhugavert að vinna með þessa nánd, með mörkin á milli raunveruleika og leikhússins, milli einlægni og leiks.“

Bókasafnið

29482-una-01777
„Bókasafnið er samansafn af hugmyndum, sögum, fortíð og framtíð. Þarna er að finna allt frá ljóðabókum, sagnfræði, skáldskap og samfélagsgreiningu og safnið er bara endalaus uppspretta hugmynda. Ég elska bækur og geng reglulega í safnið og endurles bækur. Safnið er líka samansafn minninga og upplifana. Ég á enga uppáhaldsbók en ég held sérstaklega upp á ljóðabækurnar, þá aðallega vegna þess að þær er hægt að lesa aftur og aftur og alltaf uppgötva eitthvað nýtt í hvert sinn. Það er eitthvað við bækur, pappírslyktina, áferðina og heiminn sem hver bók býr yfir sem mér finnst heillandi. Hver bók er í raun heimur út af fyrir sig, uppfullur af ævintýrum og mennsku.“

Myndir eftir synina

29482-una-01781
„Ég er hrifin af myndlist og er með nokkur verk eftir samtímamyndlistamenn upp á vegg. Vænst þykir mér þó um þær myndir sem synir mínir hafa teiknað og gefið mér. Mér þykir sérstaklega vænt um þessar tvær myndir sem synir mínir Þorleifur og Þorkell teiknuðu þar sem mér finnst þær fanga þá báða svo vel á ólíkan hátt. Ég er með mikið af myndum eftir þá uppi á vegg því mér finnst gaman að hafa þær sýnilegar, bæði fyrir mig og þá. Myndirnar draga upp mynd af hugmyndaheimi þeirra og sýn, eru skemmtilega ólíkar. Það sem gerir þær líka svo einstakar er að þær eru algjörlega þeirra.“

Kaffibollinn

29482-una-017832
„Ég safna svona litlum mokkabollum og þykir sérstaklega vænt um þennan. Ég fékk hann í frumsýningargjöf frá Sigtryggi Magnasyni eftir að við höfðum verið að vinna saman og mér finnst hann sérlega fallegur,“ segir Una sem er mikil kaffimanneskja og drekkur kaffi úr öllum bollunum sem hún safnar. „Þeir eru ekki til sýnis heldur bara lokaðir inni í skáp en ég tek þá reglulega fram og nota. Ég man ekki hvenær ég byrjaði á að safna kaffibollum, kannski fyrir svona tíu árum. Mamma og pabbi gefa mér alltaf bolla úr öllum sínum ferðalögum svo ég á bolla frá Eþíópíu og allsstaðar að. Einn þeirra er frá Grikklandi og er með skreytingum úr 24 karata gulli. Ég er samt ekkert svo mikill safnari í mér, þessir bollar eru það eina sem ég safna fyrir utan plötur og bækur.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652