„Þetta eru bara skemmdarverk,“ segir Helgi Helgason, formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar, en hann sakar Gunnlaug Ingvarsson og Gústaf Níelsson og tvo aðra flokksmenn um að hafa haldið mikilvægum gögnum eftir þannig að ekki tókst að skila inn meðmælalistum í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur. Helgi staðfestir að ekki hafi heldur tekist að skila inn meðmælalistum í norðausturkjördæmi. Það þýðir að flokkurinn mun aðeins bjóða fram í þremur kjördæmum, en ekki öllum eins og til stóð.
Gunnlaugur og Gústaf sögðu sig úr flokknum í vikunni og sökuðu Helga meðal annars um áhugaleysi gagnvart stefnu flokksins og almennt stefnuleysi sem formaður. Helgi fullyrðir að þeir hafi haldið aftur kjörgögnunum sem hafi orðið til þess að ekki tókst að skila inn nægum gögnum í Reykjavík.
Nú er farið yfir lista flokksins í þremur kjördæmum, og verður úrskurðað um lögmæti þeirra í hádeginu í dag, laugardaginn 15. október.-vg