Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Fann gleðina í detoxmeðferð í Póllandi

$
0
0

„Ég er í svo miklu sjokki yfir því hvað lagið bara sprakk út. Við erum að detta í tíuþúsund áhorf,“ segir bloggarinn og snapchat-drottningin Camilla Rut Arnardóttir sem birti á sunnudaginn tónlistarmyndband á Youtube, þar sem hún og kærastinn hennar, Rafn Hlíðkvist Björgvinsson, flytja lagið Wicked games saman. Viðbrögðin hafa verið framar vonum. Þau voru dugleg að vinna saman að tónlist hér áður fyrr, en sex ár eru síðan þau tóku efni upp síðast.

„Fjölskyldan mín er mjög tónelsk og við höfum mikið verið í gospel. Við Rabbi kynntumst einmitt í gegnum gospelið. Svo fórum við á „datenight“ um daginn og ákváðum að gera eitthvað annað en að fara út að borða. Þannig að við fórum og tókum upp lagið, sem kom ágætlega út. Svo heyrði ég í félögum mínum með að aðstoða við að mixa og gera myndband. Og þegar það var tilbúið þá hugsaði ég með mér að ég myndi sjá eftir því ef ég setti lagið ekki í loftið,“ segir Camilla um hvernig það kom til að parið fór út í þetta verkefni. En þau stefna að því að vinna meira saman að tónlist í framtíðinni.

Nýfermd og hann 19 ára
Camilla er fædd og uppalin í Krossinum og síðar Hvítasunnusöfnuðnum, en það var einmitt þar sem leiðir hennar og unnustans lágu saman fyrir níu árum. Þá var Camilla nýfermd en hann 19 ára. „Ég varð strax skotin í honum, en ég var svolítið ung þannig hann var ekkert endilega að horfa á mig á þann hátt. Við urðum strax rosalega góðir vinir, en það var alltaf eitthvað meira undirliggjandi. Það sáu það allir, en við gáfum ekkert upp strax. Við fórum rosalega hægt í sakirnar. En ég er 22 ára í dag og við erum enn saman, komin með íbúð og barn og ætlum að gifta okkur í febrúar.“

Camilla segir fólk oft hvá þegar það heyrir hvað hún er ung, en hún segist upplifa sig mun eldri en hún er. „Ég tengi ekki mikið við jafnaldra mína og flestir vinir mínir eru fimm til sjö árum eldri en ég. Ég finn það mjög vel þegar gamlar skólasystur sem búa enn heima hjá foreldrum sínum, koma í heimsókn, hvað ég er á allt öðrum stað en þær,“ segir Camilla, en hún þurfti að fullorðnast aðeins hraðar en jafnaldrar sínir af ýmsum ástæðum. „Mamma glímdi við mikil veikindi þegar ég var unglingur, svo eignaðist hún tvö börn, þegar ég var 16 og 18 ára, þannig ég varð eins önnur mamma þeirra. Ég neyddist til að taka stökk í þroska og taka á mig mikla ábyrgð. Maður gerir bara það sem þarf að gera,“ útskýrir hún.

Afi Gunnar í Krossinum
Þó Camilla sé enn trúuð þá er hún ekki virk í Hvítasunnusöfnuðinum í dag, eða öðrum söfnuði. „Ég er ekki skráð í neinn söfnuð. Ég flosnaði bara upp úr þessu. En ég er alltaf með barnatrúna í hjartanu.“
Það má segja að Camilla hafi verið í innsta hring í Krossinum á sínum tíma, en Gunnar í Krossinum er afi hennar. Hefur hún mátt þola töluvert áreiti vegna þess í gegnum tíðina. „Á tímabili mátti maður ekki segja neitt án þess að það færi í blöðin. Það var fylgst svo náið með okkur. Ég var með lokað facebook en það var einhver á mínum vinalista sem lak upplýsingum. Ég var 16 ára þegar DV hringdi reglulega í mig.“ Camilla segir þetta vissulega hafa verið óþægilegt, en hún hafi lært að leiða óþægindin hjá sér. „Ég hef orðið fyrir allskonar aðkasti út af fjölskyldunni minni en reynt að láta það ekki á mig fá. Ég er komin með ágætlega breitt bak allavega,“ segir hún og brosir.

Camilla er í góðu sambandi við afa sinn og konu hans, Jónínu Ben, en hún hefur farið þrisvar í detox meðferðir sem Jónína býður upp á í Póllandi. Síðast í maí á þessu ári. Það var þá sem snapchat-ævintýrið hófst af alvöru. „Ég fer aðallega í þetta til að vinna í andlegu hliðinni, ekki til að missa einhver kíló. Ég var búin að vera að glíma við mikið fæðingarþunglyndi og fór í maí til að takast á við það. Ég var komin á mjög slæman stað. Ég ákvað að opna snapchat og leyfa fólki að fylgjast með. Það voru margir mjög áhugasamir og ég var komin með 2500 fylgjendur þegar ég fór heim,“ segir Camilla en hún er með um fimm til sexþúsund fylgjendur í dag. „Þegar fólk heyrir um detox þá spyr það mig hvort ég sé með slöngu upp í rassinum í tvær vikur. Ég var ekki að reyna að stuðla að vitundarvakningu en mig langaði að sýna fólki hvernig þetta væri.“

camilla_f

Fæðingarþunglyndi og detox
Þegar Camilla var úti í meðferðinni þá reyndi hún að temja sér góða siði og sjá björtu hliðarnar á lífinu. Hún vissi nefnilega að hún yrði að taka til í lífi sínu til að geta verið besta útgáfan af sjálfri sér. „Ég var á þunglyndislyfjum á tímabili. Ég átti son minn í apríl og var komin á þunglyndislyf í október, en ég hætti á þeim í febrúar síðastliðnum. Ég ákvað að lyfin yrðu spark í rassinn á mér, ég vildi alls ekki verða háð þeim. Ég vissi að það voru þau sem létu mér líða betur en ég vildi að mér gæti liðið vel án þeirra líka. Þannig ég trappaði mig niður af þeim samkvæmt læknisráði.“

Að fara í meðferðina í Póllandi var svo hluti af því ferli að finna gleðina í lífinu á nýjan leik. Camilla viðurkennir að það hafi reyndar verið mjög erfitt að fara frá syni sínum í tvær vikur, þegar hann var rétt eins árs, en hún segir þetta hafa verið betra fyrir þau bæði þegar upp var staðið. „Ég ákvað að þetta væri best fyrir okkur öll. Ég tók mér mjög lítið fæðingarorlof. Ég gat það bara ekki eins og staðan var, þannig ég var að vinna heima. Ég var meira að segja að svara tölvupóstum á milli hríða þegar ég var að eiga strákinn. Að vera að vinna með nýfætt barn fór hins vegar illa í mig. Ég varð mjög kvíðin og vildi fá að vera í friði. Ég vildi bara vera ein með Gabríel syni mínum og hvæsti á fólkið í kringum mig. En ég sá að þetta gat ekki gengið til lengdar. Það var alltaf stress og álag á heimilinu og ég fékk aldrei tíma fyrir sjálfa mig.“

Sársaukafull andleg vinna
Camilla vissi hvað hún var að fara út í þegar hún fór til Póllands í vor, enda búin að fara tvisvar áður. Hún gat því skipulagt sig vel og verið búin að hugsa hvað hún vildi fá út úr meðferðinni. „Ég tók ákvörðun um að fara í massífa andlega vinnu, sem er ógeðslega erfitt. Það gerast magnaðir hlutir þegar maturinn er tekinn af manni. Maður verður svo berskjaldaður. Andleg vinna getur verið mjög sársaukafull í miðri meðferð ætlaði ég að kaupa mér miða heim til Íslands. En ég kom alveg endurnærð heim. Ég var tilbúin til að takast á við lífið og lifa því.“
Það er óhætt að segja að Camillu hafi tekist ágætlega að glæða líf sitt gleði og hamingju því fylgjendur hennar á snapchat furða sig oft á því hvað hún er alltaf glöð. „Ein algengasta spurningin sem ég fæ er: „Hvernig geturðu alltaf verið svona lífsglöð og jákvæð?“ En þá spyr ég bara: afhverju ekki? Ég hef verið á þeim stað að vakna og vilja ekki fara framúr rúminu. En á síðustu mánuðum hef ég tamið mér að vera sanngjörn við sjálfa mig og ég hef lært að elska sjálfa mig. Það er er nauðsynlegt að elska sjálfa sig til að geta elskað aðra. Ég var ekki að gefa syni mínum bestu útgáfuna af sjálfri mér, eða Rabba, þvílík þrautsegja hjá honum að halda þetta út,“ segir Camilla og skellir uppúr. En vanlíðan hennar hafði að sjálfsögðu líka áhrif á hann þó hann stæði sem klettur við hlið hennar.

Mikil vinna að líða vel
„Fólk heldur nefnilega að ég sé bara svona, en þetta hefur verið bullandi vinna. Til þess að líða vel þá þarf ég að vakna við vekjaraklukkuna, ég þarf að borða hollt og hreyfa mig. Það er mjög erfitt stundum. En ég reyni bara að sýna fólki hvernig lífið raunverulega er. Og hvernig baráttan við að vera besta útgáfan af sjálfum sér gengur fyrir sig. Þetta er barátta sem er tilbúin að vera alltaf í. Ég vil að mér og fjölskyldunni minni líði vel og að heimilið mitt líti vel út og það er bara vinna.“

 

 

Mynd/Hari


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652