Útgerðarfélögin Stálskip og Síldarvinnslan í Neskaupsstað, sem er að stóru leyti í eigu Samherja, eru meðal stærstu hluthafa í leigufélaginu Heimavalla sem hefur keypt rúmlega 1200 íbúðir á Íslandi á síðustu árum. Fyrirtækið hefur meðal annars keypt íbúðirnar af ríkisstofnunni Íbúðalánasjóði. Á föstudaginn sendi fyrirtækið frá sér fréttatilkynningu þar sem það sagði frá uppkaupum á 300 íbúðum til viðbótar við þær 900 sem það átti fyrir.
Stálskip er langstærsti hluthafinn en útgerðarfélagið gerði út frá Hafnarfirði þar til árið 2014 þegar það seldi togara sinn Þór og kvóta með fyrir um tíu milljarða króna árið 2014. Útgerðin á rúm 50 prósent í leigufélaginu, það heldur sjálft á rúmlega 49 prósent hlutafjár og svo einnig hlut í félaginu Heimavellir GP ehf. Síldarvinnslan, sem Samherji á stóran hlut í, á svo fyrirtækið SVN eignafélag sem er stærsti einstaki hluthafi Sjóvár með tæp 13 prósent. Annar stærsti hluthafi Samherja, Kristján Vilhelmsson, á svo lítinn hlut í fyrirtækinu í gegnum annað félag.
Meðal annarra þekktra hluthafa fyrirtækisins eru Magnús Pálmi Örnólfsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Glitni, sem var einn af lykilvitnunum í Stím-málinu svokallaða, fótaboltamennirnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir og Þórður Már Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri fjárfestingarbankans Straums. Tveir aðrir fyrrverandi fótboltamenn eiga svo einnig hlut í fyrirtækinu, þeir Guðni Bergsson og Gylfi Einarsson.
Athygli vekur að hluthafahópurinn er að hluta til sá sami og fjárfesti í greiðslumiðlunarfyrirtækinu Borgun í umdeildum viðskiptum við Landsbankann árið 2014. Meðal sömu hluthafa eru Stálskip, Magnús Pálmi Örnólfsson, Magnús Magnússon og Halldór Jóhannsson.
Fjárfestar eins og Heimavellir, og fyrirtækið GAMMA, eru einungis tveir af þeim stóru fjárfestum sem keypt hafa upp íbúðahúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og annars staðar á Íslandi á liðnum árum með það fyrir augum að leigja það út til almennings. Mikill skortur er á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu og sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri á upplýsingafundi í ráðhúsi Reykjavíkur á föstudaginn að byggja þyrfti 5500 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu til að mæta þörfinni. Eftir því sem þörfin eykst fyrir íbúðir á höfuðborgarsvæðinu, þeim mun hærra leiguverð er hægt að fá fyrir þær íbúðir sem fyrir eru.
Félagið tapaði hins vegar rúmum 20 milljónum á fyrst rekstrarári sínu þegar það var með rúmlega 500 milljóna leigutekjur og átti eignir upp á rúmlega 10 milljarða. Félagið hefur hins vegar keypt að minnsta kosti 600 íbúðir það sem af er þessu ári. Sú þróun að stórir fjárfestar eigi íbúðarhúsnæði almennings á Íslandi virðist því vera augljósari með hverju árinu sem líður.