Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Lág tilboð verktakans Prima ehf vekja grunsemdir

$
0
0

Verktakafyrirtækið Brotafl átti langlægsta tilboðið í verkhluta nýs Icelandair hótels við Landssímareitinn. Verkfræðistofan Efla annaðist útboð verksins í apríl og áætlaði kostnaðinn 92 milljónir króna. Tilboð Brotafls var 59 milljónir eða 65% af kostnaðaráætlun.

Sama dag og tilboðið var gert var Sigurjón G. Halldórsson, forsprakki Brotafls, hnepptur í gæsluvarðhald grunaður um stórfelld skattalagabrot. Á meðan hann var í varðhaldi tók bróðir hans, Guðjón Júlíus Halldórsson, við stjórnarformennsku í fyrirtækinu Prima ehf, og tók yfir verkefni Brotafls. Prima ehf var gamalt fyrirtæki sem hafði ekki verið starfandi í mörg ár. Starfsmenn Brotafls voru ráðnir til Prima og héldu áfram sömu vinnu. Verkstjóri Brotafls, Ómar Rafnsson, stýrði framkvæmdunum fyrir hönd Prima.
Dótturfyrirtæki Icelandair, Lindarvatn ehf, heldur utan um framkvæmdir á Landsímareitnum. Eftir að Sigurjón var handtekinn hafnaði Lindarvatn öllum tilboðum í verkið og samdi frekar við Prima ehf. Samkvæmt heimildum Fréttatímans var samið um sömu upphæð og Brotafl bauð. Rannsókn á skatta- og auðgunarlagabrotum Brotafls stendur enn hjá embætti Héraðssaksóknara.
„Ég hef aldrei áður heyrt um tengsl Brotafls og Prima,“ segir Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Lindarvatns. „Ég þekki ekki hverjir eru eigendur eða slíkt. En við erum einkaaðili, þeir eru einkaaðili og samningsverð okkar er trúnaðarmál. Við setjum ströng skilyrði til verktaka og óskuðum eftir staðfestingu á að fyrirtækið væri með sín skattamál í skilum,“ segir Davíð.

8312-david-thorlaksson
Davíð Þorláksson

-Er ástæða til að skoða tengsl Brotafls og Prima? „Nei. Þeirra verkhluta er að ljúka og þeir hafa staðið við sitt.“
Forsvarsmenn hinna fyrirtækjanna sem tóku þátt í útboðinu, og Fréttatíminn hefur rætt við, voru ósáttir við málalok og saka Prima ehf um óeðlileg undirboð.

29608_amundi_v_brynjolfsson-2
Ámundi Brynjólfsson hjá Reykjavíkurborg segir tilboð Prima ehf óvenjulegt

Prima ehf tók á dögunum þátt í útboði Reykjavíkur vegna byggingar Dalsskóla í Úlfarsárdal. Áætlaður kostnaður var 1,1 milljarður króna. Prima átti langlægsta boðið í verkið, 882 milljónir eða 79% af kostnaðaráætlun. Formgalli var hinsvegar á útboðinu svo umsóknarfrestur var framlengdur til 24. nóvember.
Ámundi V. Brynjólfsson, skrifstofustjóri framkvæmdasviðs Reykjavíkur, segir tilboð Prima óvenjulegt. „Hin fyrirtækin sem tóku þátt eru stór og stöndug og þau eru nálægt hvort öðru í verði. Prima er áberandi lægst og það hefði gefið ástæðu til vandlegrar skoðunar hvað boðið er lágt. Það er sjaldgæft nú þegar markaðurinn er þaninn, að við fáum boð sem er þetta langt frá kostnaðaráætlun.“

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652