Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, neitar að svara því játandi eða neitandi hvort lífeyrissjóðurinn ætli sér að fjárfesta í kísilmálmverksmiðju Thorsil á Reykjanesi.
„Eins og áður hefur komið fram höfum við verið að skoða mögulega fjárfestingu í Thorsil. Endanleg ákvörðun hefur ekki verið tekin og er málið því enn til skoðunar hjá stjórn LSR,“ segir í skriflegu svari Hauks til Fréttatímans.
Thorsil er að hluta til í eigu fyrirtækisins P126 ehf. sem föðurbróðir Bjarna Benediktssonar, Einar Sveinsson, á í gegnum fyrirtæki á Kýpur. Bjarni, í krafti þess að hann er fjármálaráðherra, skipar fjóra af átta stjórnarmönnum lífeyrisssjóðsins en það er stjórn sjóðsins sem meðal annars tekur ákvarðanir um fjárfestingar hans. Bjarni skipaði þau Gunnar Björnsson, Áslaugu Friðriksdóttur, Guðrúnu Ögmundsdóttir og Viðar Helgason í stjórn sjóðsins á sínum tíma.
DV fullyrti fyrr í þessum mánuði að Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins ætlaði að fjárfesta í Thorsil en fjármögnun verksmiðjunnar hefur dregist nokkuð á langinn. Haukur neitar hins vegar að staðfesta hvort frétt DV sé rétt eða þá að leiðrétta hana ef hún er röng. Ef frétt DV er rétt mun lífeyrissjóðurinn koma með hluta þeirra rúmlega 13 milljarða króna sem Thorsil ráðgerir að safna hjá fjárfestum