Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Handvalin af Trump í úrslit Miss Universe

$
0
0

Trump var eigandi Miss Universe frá 1996 til 2015. Ingibjörg Ragnheiður Egilsdóttir var fulltrúi Íslands árið 2009 en fegurðarsamkeppnin var þá var haldin var á Bahamaeyjum.

„Donald Trump kom til Bahamaeyja í fylgd lífvarða og dvaldi ásamt keppendum í þó nokkurn tíma. Það var svolítið eins og forsetinn væri mættur á svæðið og það var mikið látið með hann. Sumar stelpurnar höfðu áhuga á að ganga í augun á honum. Trump hafði mikil áhrif í keppninni og var þarna í kringum okkur, borðaði morgunmat með okkur. Ég spjallaði við hann nokkrum sinnum.“
Ingibjörg var meðal hundrað keppenda frá öllum heimshornum og dvaldi á Bahamaeyjum í mánuð. „Samskipti okkar Trump voru góð. Hann var vingjarnlegur við mig og ég upplifði enga fyrirlitningu, eins og aðrir hafa lýst í fjölmiðlum. Hann var svolítill daðrari í eðli sínu en reyndist mér vel. Ég upplifði hann ekki sem eitthvert „monster“.“
Daginn fyrir úrslitakvöldið voru allir keppendur kallaðir saman. „Við áttum að stilla okkur upp í beinni röð á sviði og svo gekk Trump um og virti okkur fyrir sér. Hann valdi úr fjórar stelpur sem honum leist best á en niðurstaðan var ekki gerð opinber. Seinna kom í ljós að ég var á listanum hans.“

29689-trump
Ingibjörg segir álit hans ekki hafa skipt hana miklu. „Ég fór í keppnina til að vera sjálfri mér og landinu mínu til sóma. Ég hafði metnað fyrir því að ná langt en það var ekki markmið mitt að heilla hann persónulega. Mér brá þegar við áttum að standa fyrir framan hann og vera metnar af útlitinu einu. Keppnin var viðameiri og reyndi á frammistöðu í viðtölum og fleira.“
Ingibjörg ræddi við Trump um að hún hefði áhuga á að komast á mála hjá umboðsskrifstofu Miss Universe. „Hann aðstoðaði mig við það og ég fór til New York á fund hjá skrifstofunni. Þegar ég kom á staðinn rann glansinn af þessu því stelpurnar voru mun yngri en ég, allt niður í fimmtán ára og rosalega grannar. Ég var 24 ára og fann að þetta hentaði mér ekki.“

29689-ingibjorg-egils

Sif Aradóttir tók þátt í keppninni 2006. „Ég kynntist honum ekki, en við hittum hann í þrígang. Þetta var ævintýri og keppnin umfangsmikil. Mín upplifun af þátttökunni var bara góð en ég áttaði mig fljótt á því að þessi heimur var ekkert fyrir mig.“
Hún segir að þau Donald og Malania Trump hafi, sem eigendur keppninnar, verið kynnt fyrir þátttakendum. „Hann var þarna að dæma líka, hafði áhrif á úrslitin. Af stuttum kynnum mínum virkaði hann bara eins og hann er í fjölmiðlum, áberandi og dómínerandi. Það er hálfgerður skrípaleikur að hann hafi náð svona langt og sé forsetaefni í Bandaríkjunum,“ segir Sif.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652