T-REX (2015)
T-REX er hrífandi og einlæg saga af stelpu sem elst upp á brotnu heimili í fátæktarhverfinu Flint í Michigan og brýst út úr aðstæðunum með frammistöðu sinni í boxhringnum. Þrotlausar æfingar og einstakt hugarfar leiða hana áfram í bandaríska landsliðið þar sem markmiðið er ekkert nema Ólympíuleikar. Ef þú hefur ekki heyrt um Claressu áður, þá er best að horfa á myndina og gúgla hana svo. Sögunni lýkur nefnilega ekki þar sem þessi mynd endar. Mynd fyrir alla sem elska íþróttir, þolraunir, góðar heimildarmyndir eða sterkar stelpur sem ögra viðteknum venjum.
Einkunn á imdb.com: 7,4 Einkunn á Rotten Tomatoes 100%
Maidentrip
(2013)
Stórkostleg heimildarmynd um hina 14 ára hollensku Lauru Dekker sem leggur ein af stað í siglingu umhverfis hnöttinn. Þrátt fyrir litla kátínu barnaverndaryfirvalda leggur hún af stað í hættuför sem hana hafði dreymt um frá því hún var barn. Hér er einstök heimildarmynd, sögð frá sjónarhóli stelpunnar sjálfar um óvenjulega drauma og óvenjuleg afrek enda ólst hún upp við óvenjulegar aðstæður. Þó ekki fáist svör við öllum spurningum sem vakna við áhorf myndarinnar, stendur eftir frábær saga sem minnir mann á hve dýrmætt frelsið er.
Einkunn á imdb.com: Einkunn á Rotten Tomatoes: 82%
Virunga
(2014)
Sterk mynd um baráttu Austur-Kóngóbúa fyrir verndun einstakrar náttúru í elsta þjóðgarði Afríku, Virunga. Þar sem skæruliðar og olíurisar ógna tilvist hinna sjaldgæfu fjallagórillu og ekki síst friði íbúanna. Frönsk blaðakona gerir einstakar uppgötvanir þegar hún fer að þefa af ásetningi olíurisanna.
Einkunn á imdb.com: 8,3 Einkunn á Rotten Tomatoes: 100%