Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Kall(ar) nýrra tíma

$
0
0

Þótt Bandaríkin séu full af fólki, öfgum, mótsögnum og einstaklega móttækileg fyrir alls konar vitleysu eru Trumparnir víða. Í Evrópu spretta þeir eins og arfi í hægri-öfgasamtökum sem beina spjótum sínum aðallega að innflytjendum og múslimum.

En er einhver íslenskur Trump? Eða erum við bara saklaus og góð?

Popúlistabyltingin í heiminum er drifin áfram af hinum ósýnilega meirihluta sem er orðinn ringlaður og vonsvikinn af misskiptingu gæðanna. Bolurinn hefur tekið sér alræðisvald og gefur skít í orðræðu elítunnar sem er löngu búin að gefa öllu venjulegu vinnandi fólki langt nef. Í stað þess að krefjast þess að auðæfum sé skipt á réttmætan hátt og fulltrúar í stjórnmálunum séu ekki bara þjónar forréttindastéttarinnar vill hinn dæmigerði hægri sinnaði bolur henda ýmsum gæluverkefnum fyrir borð sem varða alla framtíðina, þar má nefna loftslagsmálin og önnur umhverfismál og jafnrétti kynjanna.
Popúlistar reyna að segja okkur að auka megi lífsgæði venjulegs fólks með því að draga úr ferðafrelsi, umburðarlyndi og mannréttindum. Hættan er sú að frjálslyndara fólk sé ýmist of hrokafullt til að ræða vandann, of reitt til að taka afstöðu eða of sundrað til að veita viðnám.

Umræðan hér heima býður upp á ýmsa möguleika fyrir popúlista. Sigmundur Davíð komst nærri því að vera okkar Trump áður en líkneski hans var velt af stalli. Hann er sá „popúlisti“ sem hefur höggvið næst því að sameina hægri og vinstri óánægju á síðari tímum þegar hann lofaði að leiðrétta skuldirnar. Þjóðfylkingin reyndi að færa okkur hráa og ómengaða þjóðernispólitík en frambjóðendur ruku saman áður en að kosningum kom. Píratar hafa líka verið svo elskulegir að fresta popúlistabyltingunni hér á landi með því að taka við stórum hluta óánægðra kjósenda sem eru vinstra megin við miðju en fyrirlíta stjórnmálaelítuna og nómenklatúruna í kringum hana.

„Trump er svona kall sem segir það sem allir hinir eru að hugsa,“ sagði bandarísk unglingsstúlka, ánægð með sinn frambjóðanda. Og það er vissulega rétt, hann langar að menga meira, græða meiri peninga, éta meira, rífa kjaft og hann „grípur í píkuna“ á konum sem hann langar í því þær eru hvort eð er til í að gera allt fyrir svona ríka kalla sem eru alltaf í sjónvarpinu.

Alveg frábær náungi.

Víða er hægt að sjá mikil skil milli landsbyggðar og höfuðborgar þegar kemur að fylgi við popúlískar hugmyndir. Á Íslandi er líka munur á skoðunum höfuðborgar og landsbyggðar sem virðist mun hægri sinnaðri. Meirihluti þjóðarinnar kaus breytingar og felldi ríkisstjórnina. Hún hélt þó velli í öllum landsbyggðarkjördæmunum og kannski uppfylla þingmenn stjórnarflokkanna að einhverju leyti þarfir bolsins á landsbyggðinni.

Tökum sem dæmi Suðurkjördæmi. Sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi röðuðu þremur körlum fremst á framboðslistann fyrir alþingiskosningar. Það hefði sumstaðar talist dapurlegir mannasiðir með tilliti til jafnrar stöðu kynjanna en ekki í Suðurkjördæmi. Nokkrar konur urðu reyndar brjálaðar, þær gengu úr Sjálfstæðisflokknum og nærri því af göflunum. En kallarnir létu ekki hagga sér. Og hvað gerðist? Konurnar sniðgengu ekki flokkinn, nýi hægri flokkurinn Viðreisn vann ekki stórsigur. Sjálfstæðiskarlarnir þrír runnu ljúflega inn, nánast undir húrrahrópum kjósenda og flokkurinn vann sinn stærsta sigur í kjördæminu frá árinu 2007.

Í fyrsta sæti er „sjónvarpsstjarnan“ Páll Magnússon sem ver af miklum móð hagsmuni stórfyrirtækja í sjávarútvegi sem vilja ekki greiða almenningi markaðsverð fyrir auðlindir hafsins.
Í öðru sæti er Ásmundur Friðriksson, fulltrúi hins hrædda, miðaldra, hvíta karlmanns sem upplifir sig eins og hann sé í útrýmingarhættu. Frægt varð þegar hann vildi að lögregla réðist í að kanna bakgrunn allra múslima eða „múslimista“. En þrátt fyrir að fjölmiðlar hafi hamast á þingmanninum virðist tiltækið hafa aflað honum mikilla vinsælda í Suðurkjördæmi.
Þriðji þingmaðurinn hefur einkum getið sér gott orð fyrir að hafa lagt fram enn eitt frumvarpið um að gefa áfengissölu frjálsa í verslunum.

Saman eru þessir þrír nýju þingmenn ágætir fulltrúar fyrir mörg þeirra gilda sem Trump stendur fyrir. Kannski segir hann það sem þeir hugsa? Og ef maður bregður fyrir sig slagorðum af Austurvelli. Er þá, kall nýrra tíma, Ásmundur Friðriksson og Páll Magnússon, kall þjóðarinnar?

Kjósendur í Suðurkjördæmi eru að minnsta kosti stórhrifnir.

Trumpaðu það.

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652