Maðurinn er 25 ára gamall og hafði beitt barnsmóður sína og fyrrverandi eiginkonu ofbeldi í nokkur ár. Hann var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag fyrir ítrekaðar nauðganir, líkamsárásir, hótanir og smánun á konunni. Hann játaði brot sín skýlaust, meðal annars að hafa veist að konunni á fæðingadeildinni aðeins dögum eftir að hún eignaðist tvíbura, og halda ofbeldinu áfram eftir að konan kom heim af spítalanum. Í dómnum segir að við ákvörðun refsingar sé litið til þess að um einbeittan ásetning var að ræða í öllum tilvikum, að brotin hafi náð yfir langt tímabil, bæði fyrir og eftir að þau gengu í hjónaband, og á meðan maðurinn sætti nálgunarbanni. Brotin hafi til að mynda verið framin eftir að maðurinn var látinn laus úr gæslulvarðhaldi sem hann sætti vegna málsins.
Eftir því sem Fréttatíminn kemst næst, er dómurinn þungur af eltihrella- og kynferðisbrotamáli að vera. Það hafði þó áhrif á dóminn að maðurinn var enn á reynslulausn vegna ýmissa brota og bætast eftirstöðvar þess dóms við refsingu hans.
Athygli vekur að konur koma að flestum hliðum við meðferð málsins; saksóknari var Kolbrún Benediktsdóttir, dómari var Sigríður Hjaltested, réttargæslumaður konunnar var Lára V. Júlíusdóttir. Auk þess fór lögreglan á höfuðborgarsvæðinu með rannsókn málsins og nýtti sér breytt verklag í heimilisofbeldismálum, sem Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri lét innleiða. Manninum var í tvígang gert að sæta nálgunarbanni, hann var eftirlýstur af Interpol áður en dómsmálið hófst, maðurinn var vistaður í gæsluvarðhaldi og lögregla vaktaði konuna daglega um tíma til að reyna að tryggja öryggi hennar.
„Mér finnst ánægjulegt að sjá að breytt verklag skuli ganga upp, og það hefur sannað sig í þessu máli. Þarna reyndi á mjög mörg atriði sem tengjast breyttri framkvæmd í heimilisofbeldismálum. Þess vegna er ánægjulegt þegar tekst að stöðva ofbeldi með þeim verkfærum sem hafa verið í þróun í mörg ár. Þar kemur löggjafinn inn í dæmið líka, til dæmis með nálgunarbönn,” segir Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu.