Ekkert miðar áfram í kjaradeilu kennara en fundað hefur verið hjá ríkissáttasemjara síðustu daga. Nú hafa alls 52 kennarar sagt upp störfum og er ástandið í Seljaskóla einna alvarlegast þar sem alls 19 kennarar hafa sagt upp störfum. Í gær, miðvikudag, bættust 12 nýjar uppsagnir við frá kennurum í Norðlingaskóla. Hjördís Albertsdóttir er ein þeirra. Hún hefði viljað halda áfram að kenna er hefur fengið nóg af bágum kjörum og sagt upp störfum.

„Ég hef kennt í átta ár, þar af sjö í Norðlingaskóla en nú þarf ég að leita á önnur mið eftir vinnu. Ég þarf meiri laun og tíma til að sinna fjölskyldu og börnunum mínum þremur. Ef ég ætlaði mér að halda áfram í þessari vinnu, þá þyrfti ég að taka að mér aukavinnu. Mér finnst þetta mjög sorglegt og ég er hrygg yfir því að hætta störfum með frábæru teymi. Ég sé hinsvegar ekki fyrir mér að ég muni draga uppsögn mína til baka.“
Á þriðjudag lögðu kennarar um allt land niður störf kl. 13.30 til að vekja athygli á kjarabaráttu sinni. Lára V. Júlíusdóttir, hæstaréttarlögmaður og sérfræðingur í vinnurétti, sagði í kvöldfréttum RÚV sama dag að aðgerðir kennara væru ólöglegar. „Að sjálfsögðu verða þessir hópar að fara eftir landslögum eins og aðrir og það er í rauninni dálítið fáránlegt að ekki skuli gripið í taumana hjá þeim sem aðilum sem fara með það vald,“ sagði Lára.
„Hér við skólann eru unglingar sendir heim, marga tíma á mánuði, því það er yfirvinnubann hjá skólanum. Og það er lögbrot af hálfu Reykjavíkurborgar. Ég held að þessi orð Láru hafi verið tilraun til að hræða kennara frá svona aðgerðum og til að samþykkja eitthvað sem þeir vilja ekki samþykkja. Mín tilfinning er að hún hafi verið að reyna að hræða mig og láta mig líta verr út í augum almennings. Hinsvegar kveiktu þessi orð bara meira í kennurum,” segir Hjördís.
„Það er allt satt og rétt sem Lára segir um lögin, en þetta átti ekki að koma neinum á óvart því það var góður fyrirvari á þessum aðgerðum og kennarar gerðu allt sem þeir gátu til að sjá til þess að þetta bitnaði ekki á nemendum,“ segir Ragnar Þór Pétursson, kennari og trúnaðarmaður kennara í Norðlingaskóla. „Það sem fólk er í örvæntingu sinni að reyna að gera með þessari vinnustöðvun er að fyrirbyggja frekari uppsagnir því skaðinn sem hlýst af fjöldauppsögnum verður svo stórkostlegur. Það er hugmyndin með þessum aðgerðum. Það vill enginn að þetta fari þessa hefðbundnu leið og endi í verkfalli. Skólinn og mannskapurinn er orðinn það brothættur að það yrði óafturkræfur skaði ef spilað yrði eftir leikreglum.“