Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Missti allt þegar æskuheimilið brann

$
0
0

„Ég get eiginlega ekki lýst því hvernig þetta er. Þetta er auðvitað áfall á þessum tíma árs. Það er bara allt farið. Ég náði reyndar að bjarga nokkrum myndum þegar húsið fór að fyllast af reyk en allt annað brann,” segir Hjördís Jónína Tóbíasdóttir. Eldur kom upp á æskuheimili hennar í Geldingaholti í Skagafirði á miðvikudag og húsið brann til kaldra kola. Ekkert stendur eftir nema rústir og sótsvartur grunnur. „Pabbi minn og bróðir hans byggðu húsið árið 1931. Ég hef búið þarna alla ævi,“ segir Hjördís.

Grunur leikur á að mannleg mistök hafi komið af stað eldi í húsinu þegar iðnaðarmenn voru að störfum með logsuðutæki. Talið er að kviknað hafi í torfeinangrun í veggjum hússins og þannig hafi eldurinn breiðst út en húsið var úr steini. Lögreglan rannsakar nú upptök eldsins.
Við Geldingaholt í Skagafirði standa nokkur hús. Bróðir Hjördísar býr í einu þeirra og er með búskap. „Svo hafa verið leigjendur í húsinu sem stendur næst mínu húsi. Það er hinsvegar að losna snúna svo ég flyt þangað. Ég vona auðvitað að það verði hægt að hreinsa og endurreisa húsið mitt í einhverri mynd.” Ekki er ljóst hvort eða hvenær Hjördís fær tjónið bætt.

30863-bruni-varmahlid
Kaupfélagið í Varmahlíð stórskemmdist í bruna árið 1980. Þá bjó Hjördís í starfsmannaíbúð á staðnum og missti eigur sínar í brunanum. Hér má sjá umfjöllun um brunann í DV.

„Þetta er ekki fyrsti bruninn sem ég lendi í svo maður veit alveg hvað eldur getur gert. Árið 1974 brann hlaðan í fjósinu hérna. Svo lenti ég í bruna árið 1980 þegar kaupfélagið í Varmahlíð brann. Þá bjó ég í starfsmannaíbúð á staðnum og vaknaði upp við brunann. Þá brann allt sem brunnið gat, öll verslunin fór, allt innvols og bara veggirnir stóðu eftir. Ég var nú ekki með mikið dót þá, nokkuð smálegt en missti það allt. Ég hélt að maður væri búinn að fá nóg svo sem. Það er kannski pínulítið óvenjulegt að upplifa aftur svona bruna.“ Hjördís segist ekki hafa verið sérlega hrædd við eld eftir brunana. „En lengi á eftir fannst mér allstaðar vera brunalykt. Eins lyktin kæmi úr öllum áttum. Hún situr í manni lengi.“

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652