Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Ákærð fyrir árás gegn manni sem framdi sjálfsmorð

$
0
0

Einn hinna ákærðu er 48 ára gömul kona sem var meðal annars meðlimur í norðlensku vélhjólasamtökunum MC Nornir, en þess ber að geta að samtökin tengdust ekki árásinni.

Sakborningarnir eru á aldrinum 30 til 48 ára en árásin mun hafa átt sér stað í gleðskap Nornanna á Akureyri 19. júlí árið 2015.

Fram kemur í ákæruskjali að fjórmenningarnir eiga að hafa í sameiningu ráðist á Ingólf sem varð til þess að einn sakborninganna á að hafa haldið honum á meðan hinir létu höggin dynja á honum.

Þá er konan ákærð fyrir að hafa stigið á höfuð hans eða háls. Afleiðingar árásarinnar voru þrjú rifbeinsbrot, glóðarauga, auk þess sem hann marðist á enni.

Það var DV sem greindi fyrst frá málinu á síðasta ári, en þar kom fram að Ingólfur hefði kært fimm einstaklinga fyrir líkamsárás til lögreglunnar á Akureyri nokkru eftir árásina.

Degi eftir að hann kærði árásina reyndi maðurinn að fremja sjálfsmorð. Hann lést af sárum sínum skömmu síðar.

Þess ber að geta að fjórmenningunum er ekki gefið að sök að hafa tengst andláti Ingólfs með neinum hætti.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652