VS-aflinn svokallaði rennur í Verkefnasjóð sjávarútvegsins en bróðurpartur af tekjum sjóðsins rennur áfram til verkefna á vegum Hafrannsóknarstofnunar. Lög um VS-aflann heimila skipstjóra að ákveða að hluti aflans reiknist ekki til aflamarks skipsins. Heimildin takmarkast við hálft prósent uppsjávarafla og fimm prósent af öðrum sjávarafla. Valmundur segir að sambandið hafi lengi reynt að fá einhvern sjómann til að kæra útgerð vegna VS-aflans þar sem sambandið getur ekki kært slíkt upp á sitt eindæmi. Hann segir að ástæða þess að samtökin stefni einungis Þorbirni sé vegna þess að umræddur sjómaður starfi hjá þeirri útgerð.
„Við teljum að það eigi allavega að gera upp við sjómennina á réttri skiptaprósentu. Varðandi þennan VS-afla þá fá sjómenn einungis gert upp úr 20 prósent af aflaverðmæti, sem ætti að vera 70 prósent. Við viljum að sjómenn fái að fullu gert upp úr þessum afla, eins og öðrum afla. Útgerðin má koma með þetta í land og sjómennirnir vinna aflann. Samkvæmt lögum og kjarasamningum eiga menn að fá gert upp að fullu úr öllu sem komið er á land,“ segir Valmundur. -hjf