Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Segir blóð bróður síns á höndum ríkisstjórnarinnar

$
0
0

Bejtullah kom hingað til lands sem hælisleitandi frá Makedóníu í vetur. Hann bjó áður í höfuðborg Makedóníu, Skopje, og er af albönskum uppruna. Hann var 25 ára gamall þegar hann lést.

„Bróðir minn var mjög duglegur. Hann vann í Skopje á skyndibitastað og var að koma undir sig fótunum þegar fortíðin bankaði upp á,“ útskýrir Bujar sem er þremur árum eldri en bróðir hans, en Fréttatíminn ræddi við hann þar sem hann var staddur í Makedóníu.

Bejtullah var yngsti bróðirinn í fjölskyldunni og átti í vandræðum á unglingsárum að sögn Bujar.

„Hann var villtur. Hann átti það til að slást og lenda í vandræðum,“ segir Bujar, en bróðir hans virðist hafa náð tökum á lífi sínu og virtist vera að ná sér á strik.

„Svo kom að því að hann var handtekinn vegna slagsmála sem hann lenti í þegar hann var sautján ára gamall. Þá lá fyrir að hann yrði að fara í fangelsi,“ segir Bujar. Bróðir hans óttaðist fangelsið og skyndilega var framtíð hans ótrygg.

„Albanir fá ekki góða meðferð í makedónískum fangelsum,“ útskýrir Bujar. „Ég settist því niður með honum og sagði honum að nú væri síðasta tækifærið runnið upp. Hann yrði að fara úr landi ef hann ætlaði að eiga sér einhverja framtíð. Ég keyrði hann því upp á flugvöllinn í Pristina og þaðan flaug hann til Íslands.“

Bujar segir bróðir sinn hafa leitað til Íslands í von um að fá einhverja vinnu og skapa sér nýja framtíð. Í fyrstu var hann vongóður, hann vann sem verkamaður um skamman tíma, en svo fékk hann svarið. Það var það sama og Útlendingastofnun gefur öllum hælisleitendum sem flýja heimahagana af efnahagslegum ástæðum. Svarið var nei.

Bróðir hans hafði dvalið í skamman tíma á Víðinesi. Í stað þess að snúa aftur heim og takast á við afleiðingar gjörða sinna, tók hann til örþrifaráða. Hann hellti yfir sig eldfimum vökva á herbergi sínu, og kveikti í sér.

Fréttatíminn ræddi við palestínska flóttamanninn Saif Anfana, daginn eftir að Bejtullah kveikti í sér. Hann lýsti því hvernig aðrir íbúar hefðu elt hann logandi um ganga hússins og niður í fjöru. Þar datt Bejtullah í fjörugrjótinu og félagar hans náðu að slökkva eldinn. Þá átti hann eftir að heyja dauðastríð á Landspítalanum í nokkra daga.

„Þegar ég heyrði fréttirnar hérna heima, þá grunaði mig strax að þetta væri hann,“ segir Bujar. Rauði krossinn hafði samband við hann skömmu síðar og bauð honum til Íslands, sem Bujar þáði.

Hann sat með bróður sínum, sem var þungt haldin, í tvo daga, áður en hann lést. Bujar segist hafa farið heim á hótelherbergi sitt í skamma stund. Þegar hann snéri aftur, var bróðir hans látinn.

Bujar segist hafa farið á Víðines og sótt eigur bróður síns. „Þar hitti ég kunningja minn frá Makedóníu. Hann var ekki sami maðurinn og ég þekkti heima,“ segir Bujar og bætir við að það sé eitthvað meira en mikið að í hælisleitendamálum hér á landi. Hann er einnig reiður öllum eftirlitsaðilum. Bujar fullyrðir að hælisleitendur sem voru með Bejtullah á Víðinesi hafi gert Útlendingastofnun, Rauða Krossinum og starfsfólki á Víðisnesi viðvart um að bróðir hans hafi verið að tala um sjálfsmorð.

 

Bujar Raman
Bujar Raman

 

„Samt gerði enginn neitt,“ segir Bujar.

Hann segir fjölskyldu sína eiga erfitt með að takast á við dauða bróður hans. „Við erum enn að gráta,“ segir Bujar.

Það er ljóst af samtalinu við Bujar að fjölskyldan hans er enn mjög reið.

„Það þarf sérstaka ástæðu til þess að fremja sjálfsmorð með þessum hætti, og einhver er sekur,“ segir Bujar sem segist stefna á að snúa aftur til Íslands og draga hvern þann sem hann telur ábyrgan fyrir andláti bróðir síns til ábyrgðar.

„Í mínum huga er blóðið á höndum ríkisstjórnarinnar, þessari sömu og stýrir Útlendingastofnun,“ segir hann. „Bróðir minn kom til Íslands í leit að betra lífi, hann fór þaðan látinn,“ segir Bujar.

Bujar segir háværa þögn hafa umlukið andlát bróður síns. Þannig hafi hann aldrei verið nefndur á nafn í umfjöllun um málið á eftir. Bujar segist gruna að þar sé um þöggun að ræða. „Það er óþægilegt fyrir yfirvöld ef það kemur andlit á þann sem lést í þeirra umsjá,“ segir hann. Bujar segist leita réttlæist fyrir bróður sinn, hann vilji draga einhvern til ábyrgðar.

„Bróðir minn var frábær manneskja, hann átti betra skilið,“ segir Bujar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652