Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Lögreglan leitar að biblíumanni

$
0
0

Lögreglan á Vesturlandi leitar að eldri manni sem mun hafa boðið börnum við Grundaskóla á Akranesi Nýja testamentið.

Skessuhorn sem vakti athygli á málinu en þar var haft eftir aðstoðarskólastjóra, Flosa Einarssyni, að foreldrar hefðu verið látnir vita af ferðum mannsins. Honum er lýst með hvítt hár og sítt skegg, í grænni úlpu og á ljósleitri bifreið.

Í fyrstu virðist ekkert benda til þess að maðurinn hafi verið að reyna að tæla börnin. Lögreglan á Vesturlandi kom á vettvang í gær og leitaði mannsins en fann hann ekki.

Lögreglan segist ekki vita til þess að maðurinn hafi sýnt af sér ógnandi hegðun en Flosi segir þó í samtali við Skessuhorn að öryggisgæsla hafi verið hert vegna mannsins. Ekki síst vegna þess að maðurinn hefur komið ítrekað í skólann, í það minnsta tvisvar á nýju ári, og tvisvar skömmu fyrir áramót, og leikið sama leik.

Lögreglan leitar mannsins áfram, þó hann sé ekki grunaður um afbrot, „kannski hann sé helst sekur um óhefðbundna hegðun,“ segir varðstjórinn á Vesturlandi. -vg


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652