Ferðavefurinn Lonely Planet mælir með þessum áfangastöðum: Hér eru efstu sætin í hverjum flokki:

Lönd:
Kanada
Kólumbía
Finnland

Borgir:
Bordeaux, Frakkland
Höfðaborg, S-Afríku
Los Angeles, Bandaríkin.

Svæði:
Choquequirao, svæði Inkanna fornu í Perú.
Taranaki, á norðureyju Nýja-Sjálands
Asóreyjar í N-Atlantshafi.

Bestu kaupin:
Nepal
Namibía
Portó í Portúgal.
Fimm leiðir til að nýta aurana í ferðalögin:
1. Bókaðu á réttum tíma. Langur fyrirvari er ekki alltaf málið. Þetta er snúið en til dæmis hefur sýnt sig í Bretlandi að flug til Evrópu er best að bóka með viku fyrirvara.
2. Slepptu hótelum. Ef upplifunin af ferðalaginu er það sem þú ert að eltast við, þá finnur þú hana ekki á hótelherbergi.
3. Keyptu ferðatryggingu. Og þekktu rétt þinn ef eitthvað gerist.
4. Keyptu ferðabækur. Þær eru líklegar til að beina þér inn á hliðargötur og hjálpa þér að sniðganga peningaplokk.
5. Ferðist helst tvö saman. Þannig deilist ýmis kostnaður á þig og ferðafélagann. Veldu einhvern sem þér líkar við og getur þolað þig.
Leitarvélar fyrir flugmiða eru fjölmargar á netinu. Hér eru nokkrar nýlegar og góðar:
www.orbitz.com
www.CheapOair.com
www.airgorilla.com
www.skyscanner.net
www.kayak.com

Spennandi kostir
Viðskiptatímaritið Forbes tekur saman lista yfir ríkasta fólk heims en hugsar líka stundum um okkur smáfuglanna. Þar á bæ var tekinn saman listi yfir ódýra áfangastaði sem ferðalangar ættu að huga að á árinu:
1. Norðurhluti Víetnam. Fallegasta landslagið er að finna í þessum hluta landsins. Hrísgrjónastallar, fjallstindar og hlykkjóttir vegir.
2. Bishkek, höfuðborg Kirgisistan. Gömul miðstöð silkileiðarinnar fornu og spennandi gönguleiðir í fjöllunum í kring.
3. Lissabon í Portúgal. Evrópsk menningarborg á sögulegum grunni. Ódýrari en flestar aðrar í álfunni.

„Gera vel við sig“ hótelin
Ef maður skyldi vinna í lottóinu eru þetta einhver heitustu hótelanna á nýju ári. Það má alltaf láta sig dreyma.
1. Soneva Jani, Maldíveyjar. Húsin hlykkjast í keðju um ljósblátt lónið.
2. Eden, Róm. Hver vill ekki gista á Hótel Eden? Nýuppgerðu hóteli í hinni eilífu Róm.
3. Four Seasons Resort í Hoi An í Víetnam. Strandhótel sem setur nýtt viðmið.

Öflugu vegabréfin
Vegabréf ólíkra landa eru mis hátt metin. Það fer eftir því hve borgarar frá ákveðnum löndum eiga auðvelt með að ferðast milli landa, án vegabréfsáritunar. Auðveldast með ferðalög, í þessu tilliti eiga:
1. flokkur: Þjóðverjar.
2. flokkur: Íbúar Singapúr og Svíþjóðar.
3. flokkur: Danir, Finnar, Norðmenn, Frakkar, Bretar, Bandaríkjamenn o.fl.
Íslendingar eru í 7. flokki ásamt Tékkum.