Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Óljóst um ferðir rauða bílaleigubílsins á laugardagsmorgun

$
0
0

Leit er að fullu lokið um borð í grænlenska togaranum Polar Nanouq sem er við landfestar í Hafnarfjarðarhöfn en áhöfnin fékk að snúa þangað aftur í gær. Búist er við að haldið verði til veiða á mánudag.

Tveir skipverjar, sem hafa verið úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald, neita aðild að málinu og lögreglan hefur engar upplýsingar sem varpað gætu ljósi á hvar Birnu Brjánsdóttur er að finna. Unnið er út frá þeirri kenningu að henni hafi verið ráðinn bani en hún hefur verið týnd í sex sólarhringa.

 

31664 Gaesluvardhald 08617

Mennirnir eru báðir á þrítugsaldri. Lífsýni úr bíl sem þeir höfðu á leigu nóttina sem Birna hvarf hafa verið send til Svíþjóðar til rannsóknar. Lögreglan hefur vitneskju um að Birna og mennirnir hafi verið á svipuðum slóðum í borginni á sama tíma en ekki er hægt að slá því föstu enn sem komið er að hún hafi farið inn í bílinn þótt rökstuddur grunur sé um það. Grímur Grímsson vill ekki svara því hvort búið sé að rekja saman farsíma Birnu og mannanna tveggja. Hann segir þó að farsímagögnin séu grundvallargögn í málinu og hafi verið þýðingarmest við rannsóknina.

Öflugt eftirlitskerfi er á hafnarsvæðinu í Hafnarfirði þar sem Polar Nanoq lá við festar. Fram hefur komið að mennirnir koma akandi á rauðum Kia Rio um klukkan 06.10 um morguninn. Þá fór annar maðurinn upp í skipið en athygli vekur að hinn ekur út að bryggjusporðinum þar sem flotkvíin er, fer út úr bílnum og gengur í kringum hann. Hann sest svo aftur inn í bílinn þar sem hann situr svo í um 40 mínútur aðgerðarlaus. Ekki sést hvað hann gerir inni í bílnum, en að lokum ekur hann út af svæðinu um sjö leytið, og sést ekki aftur fyrr en nokkrum klukkustundum síðar.
Aldrei sést Birna Brjánsdóttir, né hafa náðst upptökur af því hvernig skór hennar enduðu á bryggjunni, nærri bensínstöð Atlantsolíu. Af þessum ástæðum hefur lögreglan lagt mikla áherslu á að leita í kringum flotkvína en ekkert hefur fundist á svæðinu enn sem komið er sem getur útskýrt afdrif Birnu.

skipverjar

Nýjustu gögn benda til þess að bíllinn hafi ekki verið inni á hafnarsvæðinu á tímabilinu 7 til 11.30 eða í tæpa fjóra tíma en lögreglan hefur enga vitneskju um hvar hann var á þeim tíma.

Móðir Birnu Brjánsdóttur, Sigurlaug Hreinsdóttir biðlaði, síðdegis í gær, enn og aftur til þeirra sem vissu um afdrif Birnu eða kynnu að hafa gert henni mein að gefa sig fram.

Mennirnir voru fluttir á Litla-Hraun síðdegis í gær, föstudag, en þeir höfðu verið í haldi á lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Grímur Grímsson, stjórnandi rannsóknarinnar, segir ýmislegt nýtt hafi komið fram við yfirheyrslur yfir mönnunum en ekkert sem hægt sé að tjá sig um á þessu stigi. Þá er skipverji í haldi lögreglu vegna 20 kílóa af hassi sem fundust um borð í skipinu.

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652