Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Blómabörn í borg: Elta græðlinga í skjóli nætur

$
0
0

Björn Þór Björnsson býr í lítilli íbúð í Vesturbænum með kærustu sinni og má segja að plönturnar hafi tekið heimilið yfir. Ofan á flestum hirslum, í öllum gluggakistum og í hverjum einasta krók og kima, má sjá plöntur breiða úr sér og vaxa í allar áttir, allt frá litlum græðlingum yfir í stærri pálma. Björn þakkar fyrir að kærastan sé sátt við áhugamálið.

31775 Bobby Blom 09389

 

 

 

„Ég er í allskyns plöntuhópum á Facebook og þegar fólk er að bjóða afleggjara þá fer ég langar leiðir til að sækja þá. Ég er með fullt af litlum krílum við skrifborðið mitt og hálfgerða útungunarstöð, svo jú, þetta tekur ansi mikið pláss.“

31775 Bobby Blom 09383

Áhugamálið hefur ekki fylgt Birni alla tíð því hann skildi ekki plöntuáhuga mömmu sinnar þegar hann var yngri. „Það þýddi ekkert að biðja mig um að vökva þegar þau fóru til útlanda, það drapst allt því ég gleymdi því alltaf. Ætli þetta hafi ekki byrjað þegar ég byrjaði í Listaháskólanum. Þá keypti ég mér eina plöntu til að hafa á borðinu mínu í skólanum og svo óx áhuginn rólega yfir árin og nú er hann í algjörum blóma.“

31775 Bobby Blom 09384 31775 Bobby Blom 09381

Þrátt fyrir alla þá ást og alúð sem Björn gefur plöntunum sínum þá fær garðurinn að standa alveg óhreyfður. Áhuginn er eingöngu á inniplöntum og lætur Björn sér hvorki detta í hug að kantskera né slá í litla garðinum utan við stofugluggann. „Mér finnst að garðurinn og allt úti í náttúrunni eigi bara að fá að vera alveg villt. Ég vil hafa fullt af náttúru inni en ekkert vera að eiga mikið við hana úti,“ segir Björn sem fjárfesti nýlega í sérstökum hönskum og rakamæli. „Já, þetta er komið á það stig, segir hann og hlær. Ég er samt ekki kominn með rakamæli sem blikkar þegar rakastigið er ekki rétt, það er fulllangt gengið í svindlinu. Mér finnst þetta eiga að vera eitthvað sem maður lærir með tímanum. Það deyja ennþá plöntur hjá mér en ég er alltaf að læra. Plöntur gera lífið grænna og fallegra og svo er svo gaman að öllu dútlinu og þolimæðinni sem þarf í þetta. Og eftir allt dútlið sér maður árangurinn þegar plönturnar fara að dafna betur eða blómstra. Allt í einu sprettur eitthvað nýtt upp og svo springur það kannski allt í einu út, þetta er svona hasar fyrir rólyndisfólk.“

Björn Þór segir friðarliljuna vera góða byrjendaplöntu. „Ekki byrja á neinu of exótísku. Kaktusar og þykkblöðungar eru góðir og friðarliljan er svo auðvelt því hún þarf litla birtu. Svo þarf að passa að vökva ekki of mikið, ofvökvun er algengasta dánarorsök plantna. Langbest er að við látum þær sem mest í friði.“
Björn Þór segir friðarliljuna vera góða byrjendaplöntu. „Ekki byrja á neinu of exótísku. Kaktusar og þykkblöðungar eru góðir og friðarliljan er svo auðvelt því hún þarf litla birtu. Svo þarf að passa að vökva ekki of mikið, ofvökvun er algengasta dánarorsök plantna. Langbest er að við látum þær sem mest í friði.“

 

31775 Andreas 09294

Andreas Tosh býr á Teigunum í Reykjavík þar sem suður-amerískur vefnaður, hengirúm, litríkir munir og hellingur af plöntum minna á heimahagana. Áður en Andreas elti ástina til Reykjavíkur bjó hann í miðbæ Buenos Aires þar sem hann ræktaði allskyns plöntur á sólríku þakinu en æskunni eyddi hann í húsi við borgarmörkin. Þar ræktuðu foreldrar hans allt milli himins og jarðar í stórum garðinum, til að gleðja augað en þó fyrst og fremst til matar.
„Ætli uppáhaldsplantan mín sé ekki avókadótré,“ segir hann. Bæði af því það gefur magnaðan ávöxt en líka vegna æskuminninganna. Afi var með risastórt avókadótré í garðinum sínum sem ég lék mér stöðugt í því það gaf svo góðan skugga og svo var auðvelt að klifra í því. Okkur krökkunum fannst líka svo gaman að tína ávextina af því,“ segir Andres sem átti risastórt avókadótré á Íslandi þar til fyrir stuttu síðan. „Við erfðum lítið avókadótré frá vinkonu okkar sem hafði ræktað það sjálf upp af avókadósteini. Það dafnaði mjög vel hjá okkur og var orðið svo stórt að það náði alla leið upp í loft. En svo fengum við okkur páfagauk sem elskaði að narta í blöðin á því svo það dó á endanum.“

31775 Andreas 09297

Andreas er alin upp við það að nýta öll fræ til ræktunar og þann sið heldur hann í þótt sólin skíni ekki jafn skært í Reykjavík. Hann nýtir sérstaklega papriku- og tómatafræ auk þess að ná að halda lífi í kryddjurtaplöntunum sem hægt er að kaupa úti í búð. „Þær eru misjafnar en með því að setja þær í nýja mold er hægt að halda í þeim lífinu. Ég kaupi líka alltaf kál í pottum sem ég læt svo vaxa upp á nýtt í nýrri mold. Það er þó erfiðara á veturna því ég er ekki með nein ljós til ræktunar,“ segir hann þar sem hann situr umvafinn pálmum og pottablómum í einu horni stofunnar.

„Það er gott að hafa blóm í kringum sig, þau fegra ekki bara heldur bæta líka loftið og umhverfið. Blóm eru lifandi verur þó að þau hreyfi sig ekki mjög hratt. Þau þurfa þolinmæði og athygli og mér finnst gaman að hugsa um þau, þó að ég sé ekki eins og vinkona mömmu sem þurrkaði blöðin á öllum plöntunum sínum daglega og talaði við þær eins og þær væru manneskjur. En í mestu uppáhaldi hjá mér eru plöntur sem gefa ávöxt og ég hlakka til í sumar þegar gluggarnir fyllast af tómötum.“

 

31789 Hildur Blom 09413_1

 

Hildur Sigurðardóttir býr með fjölskyldu sinni í kjallaraíbúð þar sem allskyns plöntur, blóm og græðlingar fylla allar gluggakistur. Hún segir plönturnar hafa það nokkuð gott þrátt fyrir að kjallarinn sé ekki sá sólríkasti í bænum, hana dreymi þó um að flytja þær í lítið hús, með stórum garði og gróðurhúsi, svipuðu og hún ólst sjálf upp í í Mosfellsbænum. „Ég held að áhuginn hljóti að vera í blóðinu. Mamma var alltaf með blóm í kringum sig og garðstofu fulla af blómum. Þegar þau seldu húsið varð svo skyndilega algjör kulnun gagnvart þessu því hún er bara með gerviblóm á svölunum og vill ekki sjá neitt lifandi. Það fór kannski of mikill tími í þetta.“

31775 chiese money plant
Kínversk peningaplanta er uppáhaldsblóm Hildar þessa dagana.

Áhugi Hildar á blómum og plöntum hefur þó aldrei kulnað heldur aukist jafnt og þétt með árunum. Þegar hún flutti að heiman um tvítugt fór hún til Danmerkur í blómaskreytinganám. „Ég hafði þá mestan áhuga á afskornum blómum en pottaplöntur er stór hluti af náminu og ég féll alveg fyrir þeim,“ segir Hildur sem hefur ekki aðeins gaman af því að sjá plönturnar vaxa og dafna heldur líka að þekkja ættfræði þeirra og sögu.

31775 Andreas 09298
„Ætli elsta blómið hér sé ekki ódrepandi friðarlilja sem hefur verið skipt niður í fleiri tugi plantna sem ganga manna á milli. En uppáhaldsblómið mitt í augnablikinu er kínverska peningaplantan mín. Ég hef tekið eftir því að hún er líka vinsæl hjá öðrum því ef einhver býður græðlinga í einum af þessum facebook hópum fyrir plöntuáhugafólk þá verður allt vitlaust. Ég held að ég geti staðfest að þetta blóm er orðið alveg hámóðins, segir Hildur sem er sannfærð um að blóm og plöntur veiti ekki bara ánægju heldur bæti líka lífsgæði okkar.
Ég sá einu sinni vísindalega norska rannsókn á tveimur skólastofum, önnur var fyllt með plöntum en hin ekki og niðurstaðan var sú að það var 100% mæting í plöntustofuna en bara 70% í þessa gróðurlausu. Það er víst líka mjög gott að vera með plöntur á vinnustöðum því þær hreinsa loftið. Það líður bara öllum betur í kringum plöntur.“

IMG_3257

 

Fimm leiðir til að halda lífi í plöntu yfir veturinn
-Haltu plöntunni frá dragsúg. Kaldir vindar geta hindrað blómstrandi plöntur í að mynda knúbba yfir vetrartímann.
-Vetrarmyrkrið getur verið sumum plöntum erfitt, þótt margar lifi það af. Ef þú vilt rækta blómstrandi plöntur eða kryddjurtir yfir veturinn þá er hægt að fjárfesta í lampa.
-Passaðu að halda rakanum í moldinni yfir þurrustu mánuðina. Ef loftið er of þurrt verða grænblöðungar brúnir og missa blöðin.
-Minnkaðu vökvun yfir dimmustu mánuðina. Hægari vöxtur kallar á minni næringu.
-Fylgstu vel með litlum aðskotadýrum. Þurrt upphitað loft og lokaðir gluggar kalla á litlar pöddur.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652