Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Ljósmyndir Jóhönnu Ólafsdóttur: Leikhús hversdagsins

$
0
0

„Ég sá verkin hennar Jóhönnu á samsýningu í Þjóðminjasafninu fyrir nokkrum árum og hugsaði strax með mér; Hver er þessi kona? Ég verð að setja upp sýningu með verkunum hennar,“ segir Sigríður Kristín Birnudóttir sýningarstjóri yfirlitssýningar á verkum Jóhönnu Ólafsdóttur í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Jóhanna er ein af fáum kvenljósmyndurum sem hefur starfað allan sinn feril við ljósmyndun. Hún var aðalljósmyndari Þjóðleikhússins frá 1971 til 1987 en þá hóf hún störf sem ljósmyndari Árnastofnunar og hefur verið þar síðan.
Líkt og sýningarstjórinn bendir á þá hafa ljósmyndir Jóhönnu ekki fengið mikla athygli yfir árin. Hún hefur þó tekið þátt í nokkrum samsýningum og aldrei hætt að mynda sitt nánasta umhverfi þótt dagvinnan hafi tekið mestallan hennar tíma. Á sýningunni gefur að líta brot úr nokkrum myndaseríum sem allar eiga það sameiginlegt að fjalla um fólk. Um mannlífið í allri sinni fjölbreytni og oftar en ekki fólk í hversdagslegum aðstæðum sem virka stundum framandi og óvenjulegar í nálgun Jóhönnu, eins og í seríunni Allaballar í lautarferð eða Menn við pósthólf. Saman mynda ljósmyndirnar heild sem minnir meira á innsetningu í hálfsúrrealísku umhverfi en hversdagslegar athafnir. Sjálf segir Jóhanna áhuga sinn á óvenjulegum aðstæðum venjulegs fólks sennilega koma úr leikhúsinu, hún eigi það til að sjá fólk eins og leikara á sviði hversdagsins.
Auk þess að rölta um og skoða mannlífið á veggjum safnsins er hægt að tylla sér niður í lokuðu herbergi og horfa á ljósmyndir Jóhönnu úr leikhúsinu renna yfir skjáinn. Sýningin opnar í dag og stendur þar til í maí.

 Kona í Austurstræti 1970 Á þessum tíma notaði allskonar fólk strætó og nánast allir vagnar fóru í gegnum miðbæinn svo þangað lá alltaf straumur fólks.

Kona í Austurstræti 1970
Á þessum tíma notaði allskonar fólk strætó og nánast allir vagnar fóru í gegnum miðbæinn svo þangað lá alltaf straumur fólks.

 

Uppboð í tollinum 1985 Það var mikið um að vera í skúrnum við tollhúsið í Borgartúni þar sem múgur og margmenni komu saman í leit að hverskyns óvæntum gersemum úr tollinum.
Uppboð í tollinum 1985
Það var mikið um að vera í skúrnum við tollhúsið í Borgartúni þar sem múgur og margmenni komu saman í leit að hverskyns óvæntum gersemum úr tollinum.

 

Bókaverslun Ísafoldar um 1969 Þessa mynd tók Jóhanna í gegnum gluggann á bókabúðinni, á leið sinni heim seint um sumarkvöld.
Bókaverslun Ísafoldar um 1969
Þessa mynd tók Jóhanna í gegnum gluggann á bókabúðinni, á leið sinni heim seint um sumarkvöld.

 

Maður við pósthólf 1986 Jóhanna hefur alltaf haft gaman af því að taka myndir af venjulegu fólki í óvenjulegum aðstæðum. Hún myndaði reglulega pósthólfaherbergið í kjallaranum í Pósthúsinu í Austurstræti þangað sem fyrst og fremst jakkafataklæddir karlar sóttu póstinn sinn hvern einasta morgun.
Maður við pósthólf 1986
Jóhanna hefur alltaf haft gaman af því að taka myndir af venjulegu fólki í óvenjulegum aðstæðum. Hún myndaði reglulega pósthólfaherbergið í kjallaranum í Pósthúsinu í Austurstræti þangað sem fyrst og fremst jakkafataklæddir karlar sóttu póstinn sinn hvern einasta morgun.

Myndir úr lautarferð Allaballa 1976:

272 Jóhanna Ólafs 442 Jóhanna Ólafs 278 Jóhanna Ólafs 444 Jóhanna Ólafs 443 Jóhanna Ólafs 273 Jóhanna Ólafs 275 Jóhanna Ólafs

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652