Íslandsdeild samtakanna Empower Nepali Girls var stofnuð í vikunni í litlu húsi í Skerjafirðinum. Samtökin styðja við nepölsku samtökin sem kosta nepalskar stúlkur til náms. Forsprakki samtakanna er Guðrún Harpa Bjarnadóttir sem fann samtökin eftir like á Instagram frá hinni írönsku Söru Safari, sem vinnur með samtökunum.
„Ég fór í Everest Base Camp í Nepal í haust og heillaðist af fólki og umhverfi. Þarna er gríðarleg fátækt en allir eru svo glaðir og gjafmildir, þetta er alveg ótrúlegt fólk.“
Eftir heimkomuna fór Guðrún á stúfana í leit að samtökum sem hún gæti stutt við í Nepal og rakst á Empower Nepali girls samtökin. „Svo kom þetta bara upp í hendurnar á mér. Sara like-aði mynd hjá mér og ég fór að skoða prófílinn hennar og sá að hún er í tengslum við þessi samtök.“ Guðrún varð heilluð af Söru, sögu hennar í Nepal og samtökunum, sem eru bandarísk-nepölsk og hafði samband við Söru. Afraksturinn var því að Íslandsdeild samtakanna var stofnuð með þeim tilgangi að safna fjármunum. „Samtökin hafa styrkt um 300 stelpur en hafa bara einn starfsmann, þannig nær allir fjármunir fari beint til stúlknanna og styrkja þær til náms. Því er hægt að sporna við því að stúlkur verði giftar barnungar eða seldar í kynlífsþrælkun.“ Þann 6. mars mun fyrsti viðburður félagsins vera haldinn í HR þar sem Sara Safari sjálf mun tala.