Líf mitt sem Kúrbítur
Þessi teiknimynd fjallar um ungan franskan pilt sem er kallaður Kúrbítur. Kúrbítur er sendur á munaðarleysingjahæli og er dvölin honum erfið í fyrstu en þegar líður á fer hann að bindast öðrum börnum vináttuböndum. Huglúf og hjartnæm mynd sem tilnefnd er til Óskarsverðlauna.
Hentar: 7 ára og eldri.
Regína
Frábær íslensk kvikmynd sem ætti heldur betur að framkalla nostalgíu hjá stórum hópi. Regína er ung stelpa sem áttar sig einn daginn á kraftinum sem hún hefur í söng sínum. Regína og Pétur vinur hennar áforma að koma foreldrum sínum saman.
Hentar: Öllum.
Snipp, Snapp og Snut og Hvad ske?
Þeir félagar Snipp, Snapp og Snut búa í litríkum heimi þar sem allt er fullt af góðgæti og blöðrum. S-in þrjú fljúga um til þess að uppgötva alla króka og kima. Fallegir litir í sænskri teiknimynd um vináttuna.
Hentar: Þeim allra yngstu (3+).
Stelpan, mamman og djöflarnir
Kvikmyndin fjallar um Siri sem býr með dóttur sinni í lítilli íbúð í fjölbýli. Djöflarnir ráða ríkjum í lífi móðurinnar en dóttirin upplifir veröldina á annan hátt. Dóttirin Ti elskar móður sína skilyrðislaust og sér ekki djöflana sem móðirin sér heldur notar sitt eigið ímyndunarafl til að skreyta veröldina. Kvikmyndin er frumsýnd frítt í samstarfi við Geðhjálp og er á sænsku með enskum texta.
Hentar: Eldri börnum og fullorðnum.