Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

VR stofnar leigufélag – 15-30% lægra leiguverð

$
0
0
Stjórn VR ákvað á fundi sínum í gærkvöld, að stofna leigufélag fyrir félagsmenn VR. Félag sem ekki yrði rekið í hagnaðarskyni. Áður hafði trúnaðarráð félagsins hvatt til þess að slíkt félag yrði stofnað

Stofnun leigufélagsins er viðbragð félagsins við gríðarlega erfiðum aðstæðum á húsnæðismarkaði á Íslandi í dag og þá einkum á meðal ungs fólks. Framboð leiguhúsnæðis er ekki aðeins takmarkað heldur er leiguverð svo óheyrilega hátt að kalla má ástandið fársjúkt. Öfugt við almenn leigufélög mun leigufélag VR snúast fyrst og fremst um það hvernig hægt sé að hafa leiguna sem lægsta en ekki sem mesta arðsemi.

Áætluð uppsöfnuð þörf á nýjum íbúðum á íslenskum markaði eru 6.000 íbúðir og árleg þörf nýrra íbúða eru 2.200 íbúðir svo augljóst má vera að um neyðarástand er að ræða. Stjórn VR telur það félagslega skyldu sína að bregðast við með einhverjum hætti og leggja þannig eitthvað á vogarskálarnar í þeirri von að slíkt viðbragð verði opinberum aðilum, öðrum félögum, samtökum og sjóðum fyrirmynd og hvatning til að gera eitthvað viðlíka eða koma til samstarfs við VR um frekari verkefni.

Nánari útfærsla á framkvæmdum, úthlutunarreglum, leiguverði o.þ.h. verður í höndum Húsnæðisnefndar VR og munum við færa fréttir af því á þessum vettvangi um leið og eitthvað liggur fyrir.

Ragnar Þór Ingólfsson hefur áður lýst því yfir að hugmyndin að leigufélagi VR byggi á því að koma inn með fjármagn sem hefur hóflega ávöxtunarkröfu og reikna leiguverð út frá því. „Með því að koma með þessa nálgun á verkefnið þá munum við geta lækkað leiguverð frá 15 og upp í 30% af markaðsleiguvirði sem nú er og það eingöngu með því að – hvað eigum við að kalla þetta – afgræðgisvæða kröfuna um heimtur eða ávöxtun sem að sett er í þetta.  Í okkar reiknisdæmi þá komum við með 30% eigið fé í svona verkefni með ávöxtunarkröfu sambærilega og lengstu ríkistryggðu skuldabréf sem er um 2%.           Síðan reiknum við með hefðbundinni ávöxtunarkröfu lífeyrissjóða inn í svona verkefni. Ef að þeir geta komið að þessu þá er alveg klárt að það verður hægt að fara þessa leið. Við erum ekki búin að samþykkja að fara í þetta við erum einfaldlega að leggja lokahönd á þetta módel sem að mun síðan fara í umræðu innan stjórnar til endanlegara afgreiðslu og svo til trúnaðaráðs.“ sagði Ragnar Þór m.a. við Rúv fyrr í mánuðinum.

The post VR stofnar leigufélag – 15-30% lægra leiguverð appeared first on Fréttatíminn.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652