Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Mismunandi útihátíðatíska?

$
0
0
Áður en haldið er á útihátíð um verslunarmannahelgi er mikilvægt að búa sig vel. Tískan spilar þó óneitanlega inn í þó einnig sé mikilvægt sé að klæða sig eftir veðri. En er einhver munur á tískunni eftir útihátíðum? Fréttatíminn kannaði málið.
Vestmannaeyjar

Samkvæmt nýjustu spám verður besta veðrið í Eyjum í ár. Brekkan í Dalnum getur þó orðið ansi drullug og því er ráðlegt að eiga góðar pollabuxur. Ef marka má helstu tískulöggur Dalsins er maður ekki gjaldgengur á Þjóðhátíð nema að eiga að minnsta kosti þrjár flíkur merktar 66° Norður. Brúsi sem hægt er að geyma um hálsinn er einnig nauðsynlegur staðalbúnaður fyrir helgina. Búningakeppni er ómissandi hluti af Þjóðhátíð og er orðið á götunni að all nokkrar Elsur muni láta sjá sig í Dalnum í ár.

22536 eyjar 322536 eyjar 2

22536 eyjar 1Reykjavík

Útihátíðir eru ekki fyrir alla, það er bara þannig. Á tónlistarhátíðinni Innipúkanum verður að finna bland af hipphoppi, reggí- og indítónlist svo búast má við fyrsta flokks hippsterum á hátíðina í ár og líklega verður tekin forskot á þá tísku sem mun einkenna haustið í höfuðborginni.

22536 reykjavík hipster 222536 reykjavík hipster

Ísafjörður

Réttur klæðnaður og útbúnaður skiptir sköpum ef ná á árangri á Evrópumeistaramótinu í mýrarbolta. Teipaðir takkaskór eru algjör nauðsyn og þægilegur fatnaður er mikilvægari en einhverjar merkjavörur. Um leið og flautað verður til leiks munu fötin hvort sem er ekki sjást fyrir drullu, en það er líka skemmtilegast við mýrarboltann!

22536 ísafjörður
22536 ísafjörður 2

Neskaupstaður

Fjölskyldustemning eins og hún gerist best mun einkenna Neistaflug í Neskaupstað. Gúmmístígvél, gallabuxur og lopapeysa á börnin, mömmu, pabba, ömmu og afa. Svo fara allir saman á sveitaball.

22536 neskaupstaður 222536 neskaupstaður 1

Akureyri

Akureyri mun einkennast af tvenns konar týpum þessa helgina: Landsbyggðarhippsterum í ponsjóum eða vönduðum ullarklæðnaði og Hunter stígvélum, eða keppnismanneskjum í íþróttaklæðnaði frá toppi til táar. Ástæðan? Tveir stórir viðburðir fara fram í bænum um helgina: Ein með öllu og Unglingalandsmót UMFÍ.

22536 akureyri 2Geysir föt Fatnaður Stígvél

The post Mismunandi útihátíðatíska? appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652