Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Samkomulag um loðnukvóta

$
0
0

Samkomulag um loðnukvóta

Loðna - mynd
Meginefni nýja samningsins er að hlutir þjóðanna verði með þeim hætti að Ísland fær 80% loðnukvótans, Grænland 15% og Noregur 5%.

Engar breytingar eru á heimildum Grænlands og Noregs til veiða í íslenskir lögsögu utan að nú geta þrjú vinnsluskip í stað tveggja veitt heimild Grænlands. Heimildin sjálf er óbreytt að magni til. Samningurinn er ótímabundinn, en hægt að segja honum upp með eins vertíðar fyrirvara.

Góð samstaða hefur verið milli strandríkjanna um að fara að ráðgjöf og stunda ábyrgar veiðar. Núgildandi aflaregla hefur hlotið staðfestingu Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) um að hún standist sjálfbærnimarkmið og varúðarsjónarmið. Nær engin loðna er lengur veidd í lögsögum annarra ríkja en Íslands og sumarveiðar hafa ekki verið stundaðar um árabil.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652