Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Ný bók frá Jussa

$
0
0

Áhugafólk um góðar spennusögur getur sett sig í stellingar því sjötta bók danska rithöfundarins Jussi Adler-Olsen er komin út á íslensku. Bókin nefnist Stúlkan í trénu og umfjöllunarefnið er sem fyrr Deild Q.

22668 - jussabók

Söguþráður bókarinnar er á þá leið að eldri lögreglumaður hringir í Carl Mørck til að skýra honum frá máli sem hefur plagað hann í sautján ár. Carl vísar honum snarlega frá en daginn eftir er aftur hringt: þá hefur maðurinn stytt sér aldur í sinni eigin starfslokaveislu. Carl og félagar hans hjá Deild Q, þau Assad og Rose, sjá sig tilneydd að halda af stað og komast að því hvað það var sem hann vildi þeim.

Í ljós kemur að lögreglumaðurinn rannsakaði atburð sem gerðist árið 1997 er lík ungrar stúlku fannst á Borgundarhólmi. Ekið hafði verið á hana á miklum hraða og hún kastast upp í tré en bílstjórinn stungið af. Málið var rannsakað en ekki upplýst. Habersaat lögreglumaður vildi þó ekki gefast upp og brátt snerist allt hans líf um þetta slys – eða var það kannski ekki slys?

Íslandsvinurinn Jussi Adler-Olsen áformar að bækurnar um Deild Q verði alls tíu svo hann er rétt hálfnaður.

Stúlkan í trénu fór beint á topp metsölulista Eymundsson í síðustu viku.

Heimasíða Jussa.

The post Ný bók frá Jussa appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652