Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Landssamband íslenskra verzlunarmanna, harmar ákvörðun VÍS að loka átta þjónustuskrifstofum á landsbyggðinni

$
0
0

Fjöldi einstaklinga missa vinnu sína 

Landssamband íslenskra verzlunarmanna, LÍV, harmar ákvörðun VÍS að loka átta þjónustuskrifstofum á landsbyggðinni. Fjöldi einstaklinga missi með þessu vinnu sína eða þurfi að sækja vinnu landsvæða á milli.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu til fjölmiðla.

LÍV gerir athugasemdir við að aðgerðir VÍS bitni fyrst og fremst á landsbyggðinni og gerir kröfu um að ákvörðunin verði endurskoðuð. Annars megi gera ráð fyrir að margir leiti annað með viðskipti sín í framtíðinni.

Forsvarsmenn VÍS tilkynntu í síðustu viku að sameina ætti þjónustuskrifstofur fyrirtækisins víðsvegar um landið.

Skrifstofunum fækkar við þetta úr þrettán í sex og segir á vefsíðu fyrirtækisins að þetta sé gert í samræmi við nýja framtíðarsýn fyrirtækisins um að verða stafrænt þjónustufyrirtæki og hefur verið ákveðið að breytingarnar taki gildi þann 1. október næstkomandi.

Tengt efni:

Ísland í 1.sæti í heimi í okri á eldsneyti – Tryggingafélög okra á bíleigendum upp á hundruð prósenta og greiða háan arð

Neytendur greiði fyrir tap á braski tryggingafélaganna – Uppsafnaður bótasjóður í arð til hluthafa

Hver á 30 milljarða uppsafnaðan bótasjóð tryggingafélaganna?

Háar arðgreiðslur til hluthafa tryggingafélaga á sama tíma og iðgjöld á almenning hækka

Fjármálaeftirlitið styður óþarfa ofur hækkanir á bílatryggingum sem eru langt umfram verðlag


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652