Heiðveig María Einarsdóttir er sjómaður og lögfræðingur býður sig fram gegn formanni Sjómannafélags Íslands
,,Miðað við mína reynslu af samskiptum við okkar verkalýðsforystu gerði ég ekki ráð fyrir að okkar hagsmuna væri gætt hér frekar en fyrri daginn þegar nýtt veiðigjaldafrumvarp var kynnt nú í síðustu viku.”
,,Eftir sjómannaverkfallið 2017 var ítrekað skorað á mig að bjóða mig fram til forystu og hugleiddi ég það af mikilli alvöru. Á sama tíma hef ég hvatt Sjómannafélag Íslands og Sjómannasamband Íslands til að láta verkin tala en upplifað þögn.
Eftir að ég skilaði sjálf inn umsögn um Veiðigjaldafrumvarp Ríkisstjórnarinnar í gær hefur pósthólfið mitt fyllst af hrósi, hvatningu, áhuga og áskorunum til forystu og hef ég því tekið þá stóru ákvörðun að bjóða mig fram til formanns fyrir Sjómannafélag Íslands.
Ég vil í framhaldi af þessari ákvörðun örva umræðu meðal sjómanna og kalla á sama tíma eftir áhugasömu fólki til að vinna að og móta stefnu framboðsins.
Á sama tíma og sjómannaforystan telur hag sjómanna hafa tekið stakkaskiptum eftir síðustu samninga með fríu fæði og vinnufötum sem þeir sjálfir og hjálparlaust, að eigin mati, komu inn í okkar kjör líður mér eins og þeim finnist þeir getað tekið sér pásu frá þeim málum sem okkur varða – félaga þessara stéttarfélaga.
Á þeim tíma sem liðinn er frá seinasta verkfalli hef ég sjálf ítrekað reynt að vekja athygli á málum sem bregðast þarf við og hvatt forystu sjómanna til aðgerða, bæði í beinum samtölum við forsvarsmenn þessara félaga sem og með skrifum o.fl til að vekja athygli á þeim atriðum sem mér finnst mikilvægt að fjallað sé um og unnið sé að á þeim tíma sem líður á milli samningaviðræðna.
Ég hef bent á hvernig sjómenn fengu einir stétta ekki aukið mótframlag launagreiðanda í lífeyrissjóði, gagnrýnt framgöngu forystunnar varðandi myndavélaeftirlit og nú síðast varðandi frumvarp um breytingar á veiðigjaldinu.
Miðað við mína reynslu af samskiptum við okkar verkalýðsforystu gerði ég ekki ráð fyrir að okkar hagsmuna væri gætt hér frekar en fyrri daginn þegar nýtt veiðigjaldafrumvarp var kynnt nú í síðustu viku.
Við sjómenn ræðum það okkar á milli að líklega verði veiðigjöldin að einhverju leiti klipin af okkar hlut og af þeirri ástæðu hef ég tekið saman athugasemdir og umsögn um frumvarpið og komið þeim á framfæri við Atvinnuveganefnd Alþingis sem fer með málið.
Umsögn mína má hver sem vill lesa sér til fróðleiks og gagns.
Aðalatriði athugasemda minna eru:
1. Verðmætaaukning fiskvinnslu er ekki tekin inn í gjaldstofn til útreiknings á veiðigjaldi sem er hreinn og beinn hvati fyrir útgerð að lækka verð til sjómanna og handstýra enn frekar verðmyndun á fiski.
2. Frumvarpið tekur ekki á þeirri brotalöm sem á sér stað í verðmyndun á fiski, en upplýsingar úr opinberum gögnum benda til þess að sjómenn fái ekki gert upp á réttum verðum.
3. Frumvarpið er illa unnið og langt í frá boðlegt sem grunnur að einhverskonar sátt um pólitískt hitamál.” Segir Heiðveig María Einarsdóttir um málefni sjómanna, kjaramál og veiðigjaldafrumvarið ofl.
https://www.althingi.is/altext/erindi/149/149-7.pdf