Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Eftirför á Álftansevegi í nótt

$
0
0

Eftirför var á Álftanesvegi í nótt er lögreglan elti bifreið sem var svo ekið inn í Hafnarfjörð, þar sem að lögreglan missti sjónar af bifreiðinni.

Glöggur vegfarandi sér bifreið fara inn í port, skammt frá, þar sem bifreiðin hvarf lögreglu og lætur vita.

Bifreiðin þar var mannlaus en skammt frá er karlmaður á gangi og við athugun kom í ljós að hann með kveikjuláslykla bifreiðarinnar í vasanum.

Hann var fluttur á lögreglustöðina í Hafnarfirði þar sem tekið var blóðsýni úr ökumanni. Hann var síðan fluttur á lögreglustöðina við Hverfisgötu þar sem hann var vistaður í fangageymslu vegna frekari rannsóknar.

Fleiri mál komu upp í nótt hjá lögreglunni. Hótelgestur á hóteli í austurborginni tilkynnir um þjófnað úr öryggishólfi á herbergi sínu, þar sem að teknir voru skartgripir. Líkamsárás var í miðborginni og fjöldi fíkniefna og ölvunarmála og akstur undir áhrifum þeirra voru m.a. viðfangsefni næturinnar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652