Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Uppfærð frétt vegna rannsóknar á andláti konu á Akureyri

$
0
0

Uppfærð frétt vegna rannsóknar á andláti konu á Akureyri

Þriðja yfirheyrsla yfir manninum fer nú fram og í dag verður ákveðið hvort að farið verði fram á áframhaldandi gæsluvarðhald. Önnur yfirheyrsla yfir manninum fór fram seinnipart fyrradags.

Hann hefur verið samstarfsfús og gert ráðstafanir til að liðka fyrir rannsókn málsins. Staðfest er að hann var á vettvangi aðfararnótt sunnudags og á sunnudagsmorgun. Bráðabirgðaniðurstaða krufningar liggur fyrir en niðurstöður eiturefnarannsóknar er beðið.

Unnið er áfram að rannsókn málsins, en gæsluvarðahald yfir manninum rennur út á hádegi í dag. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort það verði framlengt. Frekari upplýsingar er ekki unnt að veita á þessum tímapunkti.

Tengt efni:

Lögreglan á Norðurlandi eystra er með til rannsóknar andlát ungrar konu

Uppfærð frétt vegna andláts konu á Akureyri


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652