Banaslysið í Hafnarfirði
Karlmaðurinn sem lést í umferðarslysinu á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í gærmorgun var pólskur ríkisborgari á fertugsaldri. Að sögn lögreglu.
Hann hafði verið búsettur hérlendis um tíma og starfaði sem iðnaðarmaður.
Maðurinn var farþegi í annarri bifreiðinni, en ökumaður hennar hefur verið úrskurðaður í farbann til 23. nóvember.