Handtekinn vegna gruns um líkamsárás
Um klukkan sjö í morgun, var karlmaður handtekinn og vistaður í fangaklefa vegna gruns um líkamsárásar sem átti sér stað inni í íbúð í vesturbænum.
Þar hafði komið til átaka á milli tveggja karlmanna þannig að annar karlmaðurinn hlaut skurð á höfði og var hann fluttur á slysadeild LSH í Fossvogi til skoðunar og aðhlynningar.
Um klukkan níu í morgun var karlmaður handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna í Grafarvogi. Var hann að auki ökuréttindalaus. Þá var brotist inn í skóla í Kópavogi í nótt, skv. dagbók lögreglunnar.