Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Breskur útgefandi segir lesendur Ragnars óseðjandi

$
0
0

Bókaforlagið Orenda Books, sem gefur út bækur Ragnars Jónassonar í Bretlandi, hefur ákveðið að flýta útkomu bókar hans, Náttblindu, á ensku. Þar með koma tvær glæpasögur hans út á sama ári ytra en slíkt er afar fátítt.

Náttblinda átti upphaflega að koma út um mitt næsta ár en hefur nú verið flýtt í ljósi þess hversu vel Snjóblinda hefur gengið. Á liðnu vori var Snjóblinda Ragnars mest selda bókin á Kindle hjá Amazon í Bretlandi og í Ástralíu. Fyrir skemmstu sagði Independent að í henni birtist „heillandi leiftur af myrkum og hrikalega ógnvekjandi sviðum mannlífsins.“ Þá samdi Ragnar um útgáfu á bókum sínum í Bandaríkjunum við St. Martin’s Press sem einnig gefur út bækur Arnaldar Indriðasonar og Yrsu Sigurðardóttur.

Karen Sullivan, útgefandi Ragnars í Bretlandi segir: „Það gerist ekki oft að tvær bækur sama höfundar séu gefnar út á sama ári í Bretlandi en í ljósi velgengni Ragnars Jónassonar lá beint við að gera það og mæta þeirri miklu eftirspurn sem er eftir nýrri bók eftir hann. Þýðing á Náttblindu var tilbúin fyrr en við ætluðum og þegar Ragnari bauðst aftur að vera með bók mánaðarins hjá Goldsboro Books í London nú í desember (Snjóblinda var gefin út í takmörkuðu upplagi í vor af því tilefni) var þetta engin spurning. Bóksalar um allt Bretland eru mjög áhugasamir og lesendur Ragnars eru hreinlega óseðjandi! Fyrir óþekktan, erlendan höfund hafa viðbrögðin nánast verið fordæmalaus. Auðvitað er mikill áhugi á norrænum glæpasögum og íslenskum þar með en við héldum að það tæki miklu lengri tíma að koma Ragnari á kortið.“

Samkvæmt upplýsingum frá Veröld, útgefanda Ragnars á Íslandi, er Ragnar nýkominn heim af Edinborgarhátíðinni þar sem uppselt var á samtal hans við skoska glæpasagnahöfundinn Malcolm Mackay.

The post Breskur útgefandi segir lesendur Ragnars óseðjandi appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652