Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Tekur kindabjúgu og E. Finnsson-sósur með sér til Slóvakíu

$
0
0

Erna Markúsdóttir er 23 ára stelpa úr Árbænum sem leggur stund á læknanám úti í Slóvakíu. Erna er formaður félags íslenskra læknanema þar í landi – en í borginni Martin eru hátt í sjötíu landar okkar í læknanámi. Í sumar hefur Erna starfað í Blóðbankanum og borðað gellur hjá mömmu sinni.

Staðalbúnaður
Ég er nú ekkert tískugúru en finnst gaman að eiga fallega hluti. Ég á það til að festast í að kaupa sömu hlutina sem mér finnst skemmtilegast að versla. Mér finnst til dæmis leiðinlegt að máta gallabuxur og á mjög takmarkað af þeim en á í staðinn mikið af yfirhöfnum, enda er auðvelt að máta þær. Ég kemst lítið í búðir úti, aðallega vegna tímaleysis og panta þar af leiðandi eiginlega allt af netinu. Ég er til dæmis dyggur viðskiptavinur Asos.

Hugbúnaður
Ég hef verið mikið að hlaupa sem er gott þegar mann vantar útrás og veðrið er gott. Ég hljóp hálft maraþon um daginn í Reykjavíkurmaraþoninu og fannst það djöfulli erfitt, ég var bara að hugsa um að drífa þetta. Ég skammaðist mín eiginlega að hafa pínt mig svona mikið þegar fréttir bárust af því hve margir voru lagðir inn eftir hlaupið. Læknanemarnir úti í Slóvakíu fara allir á djammið á sama tíma og sama stað. Það er því ekki mikil hætta á að týna vinum sínum. Við þurfum ekkert að fara í partí á undan því bjórinn kostar bara 200 kall á barnum. Þegar við fáum frí ferðumst við oft til borganna í kring; Kraká, Prag, Búdapest og Vínar til dæmis, það er svo ódýrt að ferðast með lestunum. Á leiðinni aftur út til Slóvakíu er ég að fara til Portúgal á brimbrettanámskeið sem kærastinn minn gaf mér. Við erum reyndar búin að heyra af hákarlaárásum þar þannig að ég er smá smeyk. Í vetur stefnum við svo á tvær ferðir til Austurríkis á skíði, með vinunum og með fjölskyldunni.

Vélbúnaður
Ég nota Macbook Air og iPad í skólanum og ég keypti mér iPhone 6 í sumar. Tölvan mín er reyndar með einhverja pöddu í sér og reynir í gríð og erg að segja mér hvernig ég geti orðið milljónamæringur á einni nóttu. Ég hugsa að ég verði að láta kíkja á hana. Þau öpp sem ég nota mest eru Runkeeper og Runtastic og þar vel ég yfirleitt rödd sem heitir Julia og er með mjög fallegan hreim. Svo fór ég í smá nostalgíukast síðasta vetur og dánlódaði nýjasta Sims appinu. Vinir mínir urðu að fela iPadinn í prófunum svo ég hefði tíma til að læra.

Aukabúnaður
Við eldum mikið sömu réttina úti í Slóvakíu svo það er gott að koma heim í íslenskan heimilismat. Mér finnst til dæmis æðislegt þegar mamma sýður gellur og kartöflur. Þegar ég fer frá Íslandi og út til Slóvakíu tek ég oft furðulega hluti með mér, til dæmis kindabjúgu og E. Finnsson-sósur. Ég er með fullt af gerviþörfum sem ég hef búið mér til. Þegar líður á önnina myndast svo svartur markaður fyrir svona vörur á Facebook, fólk er að býtta á E. Finnsson og blandi í poka. Ég ferðast um á gömlu, ryðguðu reiðhjóli sem dugar mér fram og til baka frá spítalanum. Ég er meira að segja búinn að mastera tæknina við að hjóla og drekka kaffi um leið sem er nauðsynlegt þegar maður þarf að mæta sjö á morgnana. Ég er búin að vera þokkalega dugleg að ferðast í sumar og uppáhalds staðurinn sem ég fór á var Rauðasandur. Það er einn fallegasti staður sem ég hef komið á, alger náttúruperla.

The post Tekur kindabjúgu og E. Finnsson-sósur með sér til Slóvakíu appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652