Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Vinalega stöðin í Firðinum

$
0
0
22760 Linda hress

Linda Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri HRESS.

Heilsuræktarstöðin HRESS var stofnuð fyrir 28 árum og hefur verið staðsett í Hafnarfirði alla sína tíð. Stöðvarnar eru tvær talsins, ein í Dalshrauni og önnur á Völlunum, en þar er einnig að finna heita potta, sundlaug og gufu. „Þegar við opnuðum lögðum við mikið upp úr þolfimitímum, enda Jane Fonda tímabilið í algleymingi,“ segir Linda Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri Hress. Það geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi hjá Hress. „Kúnnahópurinn okkar eru mjög fjölbreyttur. Við bjóðum upp á ýmis konar tíma, allt frá námskeiðum fyrir 12-16 ára upp í sundleikfimi fyrir 67 ára og eldri. Við leggjum einnig mikið upp úr því að viðskiptavinir okkar stundi ekki einhæfa heilsurækt. Þess vegna bjóðum við upp á fjölbreytta tíma, til dæmis hjól, zumba, sund, tækjakennslu og jóga. Við erum einnig rosalega nösk að þefa uppi nýjustu trendin.“

Haustið hefur aldrei litið betur út hjá Hress. „Við verðum með tæplega 100 tíma á viku svo það er úr nægu að velja. Warm Fit verða án efa meðal vinsælustu tímanna hjá okkur, en þar er verið að blanda saman Jane Fonda æfingum, jóga og jafnvel ballettæfingum. Þetta eru styrkjandi, losandi og teygjandi tímar, sannkallaðir tímar hinna gleymdu vöðva,“ segir Linda. Meðal nýrra tíma má nefna ketilbjöllutíma þar sem einnig er lögð áhersla á andlega þáttinn. „Um er að ræða blöndu af lyftingum og ljúfum jógastöðum, en það er einnig mikilvægt að ná tökum á huganum og hreinsa til þar,“ segir Linda, sem hlakkar til að taka á móti nýjum og gömlum viðskiptavinum í haust. „Frábæra starfsfólkið okkar er búið að uppfæra tónlistina og æfingarnar sínar svo það er ekki eftir neinu að bíða.“

22760 hress 2

Í haust verður hægt að velja á milli 100 fjölbreyttra tíma í hverri viku hjá heilsuræktarstöðinni Hress í Hafnarfirði.

Unnið í samstarfi við HRESS

 

The post Vinalega stöðin í Firðinum appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652