Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Gunnar Bragi fundaði með John Kerry í Alaska

$
0
0

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra fundaði með John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Alaska í gær. Gunnar og Kerry ræddu loftslagsmál og tvíhliða samskipti ríkjanna, meðal annars á sviði öryggismála.

Gunnar Bragi er í Alaska vegna ráðstefnunnar GLACIER sem hann og Kerry sóttu báðir. Í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að Gunnar Bragi hafi ávarpað ráðstefnuna í gær. Á ráðstefnunni er rætt um loftslagsmál og norðurslóðir. Ráðstefnan var haldin af utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna í samvinnu við Hvíta húsið og stofnanir með ábyrgð á málefnum Norðurslóða, en Bandaríkin eru formennskuríki í Norðurskautsráðinu næstu tvö árin. Var utanríkisráðherrum Norðurskautsríkjanna og áheyrnarríkjum boðið til ráðstefnunnar auk frumbyggja og annarra hlutaðeigandi aðila, að því er fram kemur í tilkynningu utanríkisráðuneytisins.

Gunnar Bragi, John Kerry og fleiri ráðamenn á fundinum í Alaska.

Gunnar Bragi, John Kerry og fleiri ráðamenn á fundinum í Alaska.

Í erindi sínu fjallaði Gunnar Bragi um mikilvægi endurnýjanlegra orkugjafa til að sporna við neikvæðum áhrifum loftslagsbreytinga á norðurslóðum. Hann nefndi sérstaklega möguleikana sem felast í jarðhitanýtingu til orkuöflunar og orkuöryggis og reynslu Íslands þar að lútandi. Gunnar Bragi fjallaði einnig um málefni hafsins og nauðsyn þess að viðhalda hreinleika þess og sporna við súrnun sjávar, að því er segir í tilkynningu.

Þá segir að í umræðum hafi utanríkisráðherra rætt mikilvægi þess að ríki heims kæmu sér saman um metnaðarfullan loftslagssamning í París síðar á árinu og nauðsyn þess að málefnum norðurslóða verði haldið til haga, enda séu neikvæð áhrif hlýnunar loftslags sérstaklega áberandi á norðurslóðum. Þar greindi ráðherra frá landsmarkmiðum Íslands, í samstarfi við Noreg og ríki Evrópusambandsins, um 40% minnkun losunar gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030.

Á ráðstefnunni var samþykkt yfirlýsing um mikilvægi þess að ríki norðurslóða tækju virkan þátt í að hægja á hlýnun. Loftslagsbreytingar væru mikil áskorun fyrir svæðið og heiminn allan.

Ráðstefnunni var lokað með ræðu Barack Obama, forseta Bandaríkjanna sem hvatti þjóðir heims til aðgerða gegn hlýnun loftslags.

Auk fundar síns með Kerry átti utanríkisráðherra stuttan fund með Yun Byung-se, utanríkisráðherra Suður Kóreu. Ræddu ráðherrarnir meðal annars tækifæri til aukinna viðskipta á milli landanna og samstarf á norðurslóðum, en Suður Kórea er áheyrnaraðili að Norðurskautsráðinu.

The post Gunnar Bragi fundaði með John Kerry í Alaska appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652