Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Sveppaferð í Heiðmörk í dag

$
0
0

„Almennt má segja að þeir sveppir sem eru ætir séu pípusveppir. Ef þeir eru með fellingar eru þeir gjarnan beiskir, fyrir utan gulbroddinn og auðvitað kantarelluna en hún vex ekki í nágrenni höfuðborgarinnar,“ segir Gísli Már Gíslason, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands. Gísli stendur fyrir árlegri sveppagönguferð um Heiðmörk í dag.

Mynd/Björk Sigurðardóttir

Mynd/Björk Sigurðardóttir

Gísli kennir þátttakendum í ferðinni að þekkja matsveppi og aðferðir við að geyma þá og matreiða í fjörugri sveppagönguferð seinnipartinn í dag. Ferðin tekur tvær til þrjár klukkustundir og er farin í samstarfi við Ferðafélag barnanna. Áhugasamir geta mætt klukkan 17 á einkabílum að Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Þar verður hálftíma fræðsla áður en ekið er upp í Heiðmörk. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.

„Hugmyndin er að kynna fyrir fólki helstu matsveppi sem er að finna í nágrenni Reykjavíkur,“ sagði Gísli í viðtali við Fréttatíminn þegar ferðin var farin á síðasta ári. Þar kom fram að þó margir sveppir séu afar bragðgóðir geta aðrir verið varasamir og því þarf að læra hvaða sveppi má borða og hverja ekki. Þeir sveppir sem vænlegastir eru til átu og má reikna með að finna í Heiðmörk eru lerkisveppur, kúalubbi, furusveppur, gulbroddur og merarostur.

Sjálfur fer Gísli yfirleitt á haustin og tínir sveppi fyrir veturinn. „Ég sker þá smátt, steiki í smjöri og frysti í plastpokum. Ég á þá sveppi til að nota í súpur og sósur. Sumar sveppategundir er vel hægt að þurrka en ég hef ekki farið út í það. Það er fljótlegast bara að steikja þá í smjöri og svo sjóða þeir í eigin vökva þegar þeir linast,“ segir hann.

Larch Bolete (Boletus elegans), Boletaceae

The post Sveppaferð í Heiðmörk í dag appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652