„Þurftum aðeins að hliðra til fyrir hótelinu sem kemur til með að rísa á næsta reit og líka aðeins að æfa nokkur dansspor fyrir 80 ára afmælið sem er eftir 2 ár,“ segir Guðrún Kristmundsdóttir, eigandi Bæjarins bestu.
Guðrún birti meðfylgjandi mynd á Facebook-síðu sinni í gærkvöld. Pylsuvagninn var hífður upp í gær og færður til um nokkra metra. Guðrún sló á létta strengi þegar hún greindi frá flutningunum: „Það er ekki oft sem Bæjarins beztu ákveða að lyfta sér upp, en gerðum það með stæl í kvöld,“ segir hún.
The post Bæjarins bestu flytja sig um set appeared first on FRÉTTATÍMINN.