Heimildarmynd um Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrum forsætisráðherrra, og sögu hennar sem stjórnmálamanns verður frumsýnd í Bíó Paradís 15. október næstkomandi. Myndin kallast Jóhanna – Síðasta orrustan.
Saga Jóhönnu er saga konu í miklum karlaheimi stjórnmálanna sem verður að lokum fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra á Íslandi. Í fréttatilkynningu kemur fram að í myndinni er fylgst náið með störfum Jóhönnu síðustu mánuði hennar í embætti og því sem gerist bak við tjöldin í stjórnarráðinu. Fylgst er með baráttu hennar og annarra fyrir því að fá Alþingi til að samþykkja nýja stjórnarskrá fyrir Ísland, segir í tilkynningu.
Leikstjóri myndarinnar er Björn B. Björnsson og er hann jafnframt handritshöfundur ásamt Elísabetu Ronaldsdóttur sem klippir myndina. Kvikmyndatöku annaðist Jón Karl Helgason og tónlistin er eftir Tryggva M. Baldvinsson.
The post Kona í karlaheimi: Bíómynd um Jóhönnu Sigurðardóttur væntanleg appeared first on FRÉTTATÍMINN.