Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Rignir víða um helgina og hitinn 7 til 18 stig

$
0
0

 

Veðurhorfur á landinu
Norðaustan 5-13 m/s. Rigning um austanvert landið en bjart með köflum og þurrt að kalla sunnan- og vestanlands. Hiti víða 12 til 20 stig, en 8 til 12 stig við austurströndina.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Austan og norðaustan 5-10. Súld suðaustantil, en síðdegisskúrir um sunnanvert landið, annars þurrt að mestu. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast suðvestanlands.

Á sunnudag:
Austanátt og dálítil væta, en þurrt að mestu um landið norðvestanvert. Hiti breytist lítið.

Á mánudag:
Norðaustanátt og lítilsháttar rigning eða súld austantil, skúrir um landið SV-vert, en yfirleitt þurrt norðvestantil á landinu. Áfram svipað hitastig.

Á þriðjudag:
Norðaustlæg átt og úrkomulítið, en síðdegisskúrir á Suðurlandi. Hiti frá 8 til 16 stig, hlýjast á Vesturlandi.

Á miðvikudag:
Norðlæg eða breytileg átt og dálítil væta um sunnanvert landið, en annars þurrt að kalla. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast vestantil.

Á fimmtudag:
Útilit fyri hæga breytilega eða austlæga átt, bjart veður og svipaðan hita.

The post Rignir víða um helgina og hitinn 7 til 18 stig appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652