Kvikmyndin Hrútar eftir Grím Hákonarson mun keppa fyrir Íslands hönd um Óskarverðlaunin fyrir bestu kvikmynd á erlendu tungumáli. Meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar völdu myndina sem fralag Íslands.
Kosningu ÍKSA lauk á miðnætti en kosið var á milli fimm íslenskra kvikmynda sem uppfylltu skilyrði Óskarsakademíunnar. Hrútar hlaut meikihluta greiddra atkvæða.
Hrútar hefur keppt til verðlauna á þremur kvikmyndahátíðum og unnið fern verðlaun þar á meðal til Un Certain Regard verðlaunanna á Cannes kvikmyndahátíðinni. Auk þess var Hrútar ein af þeim tíu myndum sem voru tilnefndar til LUX kvikmyndaverðlauna Evrópusambandsins 2015. Búið er að selja myndina út um allan heim og til allra Evrópulanda að undanskildu Rússlandi og Búlgaríu.
Hrútar eru enn í sýningu í íslenskum kvikmyndahúsum og myndin er orðin aðsóknarmesta íslenska kvikmyndin það sem af er þessu ári. Í vetur fer hún í almennar sýningar í kvikmyndahúsum víða í Evrópu og eftir áramót í Bandaríkjunum.
Tvær íslenskar kvikmyndir hafa hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna. Börn náttúrunnar eftir Friðrik Þór Friðriksson var tilnefnd árið 1992 í flokknum besta erlenda kvikmyndin og árið 2006 var Síðasti bærinn eftir Rúnar Rúnarsson tilnefnd í flokknum besta leikna stuttmyndin.
Grímur Hákonarsonar leikstýrði Hrútum og skrifaði einnig handritið en aðalframleiðandi myndarinnar er Grímar Jónsson. Aðalhlutverk voru sem kunnugt er í höndum Sigurðar Sigurjónssonar og Theodórs Júlíussonar.
Hrútar fjallar um tvo bræður, sauðfjárbændur á sjötugsaldri, sem búa hlið við hlið í afskekktum dal á Norðurlandi. Fjárstofn þeirra bræðra þykir einn sá besti á landinu og eru þeir margverðlaunaðir fyrir hrútana sína. Þrátt fyrir að deila sama landi og lífsviðurværi þá hafa bræðurnir ekki talast við í fjóra áratugi. Þegar riðuveiki kemur upp í dalnum grípur um sig mikil örvænting á meðal bændanna þar. Yfirvöld ákveða að skera niður allt sauðfé til þess að sporna við útbreiðslu sjúkdómsins. Bræðurnir standa frammi fyrir því að missa það sem er þeim kærast og grípa til sinna ráða.
The post Hrútar framlag Íslands til Óskarverðlaunanna appeared first on FRÉTTATÍMINN.