Það virðast vera jól eða páskar í hverri viku fyrir bjóráhugafólk á Íslandi. Fjórir frábærir bjórbarir keppast nú um að færa því gæða handverksbjór og fleiri bætast við innan tíðar, samanber opnun Bryggjunnar sem fjallað var um í Fréttatímanum í síðustu viku.
Í þessari viku verða tveir skemmtilegir viðburðir á bjórbörunum Mikkeller & Friends og Skúla Craft Bar þar sem boðið verður upp á gæðabjóra sem alla jafna fást ekki hér á landi.
Í dag, föstudaginn 11. september, verður svokallað Chicago Tap Takeover á Mikkeller-barnum við Hverfisgötu. Þá verða í boði veigar frá míkró-brugghúsum í Chicago og nágrenni. Miðvestur-svæði Bandaríkjanna hefur verið áberandi í uppgangi handverksbjóranna og að þessu sinni verða í boði bjórar frá nokkrum af þeim brugghúsum sem Mikkeller hefur bruggað með í gegnum tíðina. Þarna verða bjórar frá 18th Street-brugghúsinu, Half Acre, Off Color og Spiteful Brewing, alls 15 tegundir á krana. Auk þess verður talsvert úrval af sjaldgæfum bjórum á flösku.
Á miðvikudaginn í næstu viku, 16. september, eiga svo Freyr Rúnarsson og hans fólk á Skúla sviðið. Þá mæta bruggarar frá hinu frábæra brugghúsi Arizona Wilderness með tíu kúta af bjórum sínum og kynna fyrir áhugasömum. Arizona Wilderness var valið besta nýja brugghús veraldar á Ratebeer.com árið 2013.
„Þessi eftirsótti bjór frá besta brugghúsi veraldar 2013 er aðeins fáanlegur á krana á brewpöbbnum þeirra í Gilbert og kannski á sérstökum bjórhátíðum á stöku stað. Það er því nánast ómögulegt að komast í bjórinn þeirra. Ég setti mig þrátt fyrir þetta í samband við Jonathan í upphafi árs því mig langaði bara svo roooosalega mikið að smakka þennan geggjaða bjór en hafði bara ekki tíma eða tök á því að ferðast til Arizona. Úr varð að þeir félagar Patric og Jon ætla að kíkja á Skúlann okkar með bjórinn sinn, akkúrat tveim árum eftir að þeir opnuðu brugghúsið sitt. Þeir munu sem sagt mæta á barinn með heila 10 kúta af þeirra geggjuðustu bjórum og spjalla um ástríðu sína, bjórinn og náttúruna,“ segir Freyr Rúnarsson, bjórstjóri á Skúla.
Arizona Tap Takeover
Þeir Íslendingar sem voru á CBC-bjórhátíðinni í Kaupmannahöfn í vor ættu að kannast vel við bjóra Arizona Wilderness og geta vottað að þetta er gæðastöff. Á Skúla verður þetta í boði:
1. American Presidential Stout, Barrel Aged, 11% imperial stout BA
2. Superstition Coffee Stout, 5.7% stout m. kaffi og vanillu
3. Santa Theresa Enkel, 5.2% belgian blond
4. Table Top Saison, 4.4% saison
5. The New Brood Belgian Quad, 9.2%
6. Barley Wine Barrel Aged, 9.8% Barley Wine BA
7. Woolsey in The Wild Barrel Aged, 5.8% tunnuþroskaður súrbjór með appelsínum
8. Pine Mountain Sour Pale, 5.7% súr pale ale
9. De Kofa Extra Pale, 6.7% belgískur pale ale
10. Pusch Ridge Porter, 5.8% klassískur porter
The post Frábærar heimsóknir á Skúla og Mikkeller appeared first on Fréttatíminn.