Þórður Pálsson er ungur og efnilegur kvikmyndaleikstjóri sem útskrifaðist á þessu ári frá National Film & Television skólanum á Englandi. Á dögunum hlaut Þórður Nordic Talents verðlaunin frá Norræna sjónvarps- og kvikmyndasjóðnum sem veitt voru í fimmtánda sinn í byrjun mánaðarins. Á þessum 15 árum hafa Íslendingar hlotið verðlaunin fjórum sinnum og segir Þórður þau vera góðan stökkpall. Þórður á stuttmynd sem sýnd verður á RIFF en er hann ekki viss um að komast til landsins til þess að vera viðstaddur.
„Ég var ekki með neitt í höndunum nema bara hugmyndina í kollinum sem ég sagði dómnefndinni eins og sögu, og það fannst þeim greinilega það áhugavert að ég fékk verðlaunin,“
„Nordic Talents hefur verið haldið undanfarin fimmtán ár og Íslendingar eru búnir að vinna fjórum sinnum, sem verður að teljast nokkuð gott,“ segir Þórður Pálsson kvikmyndagerðarmaður sem hlaut Nordic Talents verðlaunin í Kaupmannahöfn á föstudaginn síðasta.
„Þessi verðlaun eru mikill stökkpallur og það koma aðeins þeir til greina sem hafa útskrifast úr einhverjum af stóru skólunum í hverju landi í Skandinavíu. Þar sem við á Íslandi eigum ekki kvikmyndaskóla sem veitir masters-nám, þá komum við til greina þrátt fyrir að hafa lært utan Norðurlandanna,“ segir Þórður sem útskrifaðist fyrr á þessu ári frá National Film & Television skólanum á Englandi.
„Ég fékk verðlaunin fyrir mynd sem ég er að fara að skrifa sem heitir Stuck in Dundalk,“ segir Þórður. „Verðlaunin eru veitt þeim sem koma með bestu hugmyndina og hvernig hugmyndin er kynnt fyrir dómnefndinni. Ég var ekki með neitt í höndunum nema bara hugmyndina í kollinum sem ég sagði dómnefndinni eins og sögu, og það fannst þeim greinilega það áhugavert að ég fékk verðlaunin,“ segir Þórður sem hefur búið í Englandi undanfarin þrjú ár. „Ég var tvö ár í skólanum og er núna fluttur inn í London þar sem allt gerist og öll framleiðslufyrirtækin eru staðsett.
Þetta er auðvitað erfitt en þessi verðlaun munu eflaust hjálpa mér mikið í því að koma mér á framfæri,“ segir Þórður. „Skólinn minn er líka mjög duglegur að koma sínum nemendum á framfæri og við erum eiginlega öll úr bekknum mínum komin með umboðsmann. Þetta er samt mikil þolinmæði sem maður þarf,“ segir hann. Á RIFF hátíðinni, sem hefst í lok september, á Þórður mynd sem keppir í flokki stuttmynda. Myndin heitir Brothers og gerist í sjávarþorpi, sem eru Þórði hugleikin. „Það er líklega vegna upprunans,“ segir hann. „Mér finnst mjög gaman að skrifa um eitthvað sem gerist í litlum sjávarþorpum. Ekkert endilega á Íslandi samt. Ég ætla að reyna að koma heim og fylgjast með RIFF en það er ekki víst að það takist. Það eru nokkur framleiðslufyrirtæki farin að hafa samband og vilja hitta mig, svo ég verð að skoða það. Ég er mjög spenntur fyrir því að koma og hitta David Cronenberg,“ segir Þórður Pálsson kvikmyndaleikstjóri.
The post Þarf mikla þolinmæði til að verða kvikmyndaleikstjóri appeared first on Fréttatíminn.