Þegar tölvurisinn Apple kynnir nýjar vörur fylgist heimurinn með. Í vikunni kynnti Apple nýja útgáfu af iPhone símanum, svokallaðan iPhone 6S sem er betrumbætt útgáfa af iPhone 6 sem kom á markað á síðasta ári. Á kynningu Apple á nýjustu vörum sínum í vikunni, sem horft er á um heim allan, birtust myndir af íslenskri náttúru og íslensku fólki, og auðvitað fóru þær sem eldur um sinu á íslenskum vefmiðlum. Myndirnar voru teknar hér á landi fyrir rúmum tveimur mánuðum og var það framleiðslufyrirtækið Pegasus sem annaðist framleiðsluna fyrir Apple.
Fólkið sem Apple notaði á myndum sínum var meðal annars valið í gegnum Eskimo Models og segir eigandi fyrirtækisins, Andrea Brabin, alltaf mikla leynd fylgja slíkum verkefnum. „Maður hefur ekkert þorað að tala um þetta fyrr en núna. Allt í kringum stórfyrirtæki eins og Apple krefst mikillar leyndar,“ segir hún. „Það voru notuð einhver sjö módel frá okkur ásamt fleira fólki, og það er ekki búið að birta allt. Þetta var tekið á sjö dögum vítt og breitt um landið. Þeir munu birta þetta smám saman í öllu sínu kynningarstarfi á næstu vikum og mánuðum líklega. Það er mjög gaman fyrir okkur að taka þátt í jafn stóru verkefni og þessu. Það fylgjast allir með því sem Apple gerir,“ segir Andrea Brabin, eigandi Eskimo Models.
The post Íslenskar fyrirsætur í kynningu fyrir iPhone appeared first on Fréttatíminn.