Gallerí Skúmaskot sem rekið er af tíu listakonum og hönnuðum verður að rýma húsnæði sitt við Laugaveg fyrir mánaðamót. Rífa á húsið, sem stendur á Brynjureit, og byggja nýtt hús þar sem gert er ráð fyrir að verði íbúðir, hótel og verslanir.
Bar bratt að
„Þetta kemur svo sem ekki á óvart, við höfum leigt þetta húsnæði frá mánuði til mánaðar og alltaf vitað að þetta væri tímabundið ástand, en við fengum bara að vita að við þyrftum að fara 1. október núna um mánaðamótin og mánaðarfyrirvari er ansi knappur,“ segir Elín Haraldsdóttir keramiker, ein þeirra tíu listakvenna og hönnuða sem rekið hafa galleríið og listmunaverslunina Skúmaskot í bakhúsi við Laugaveg 23 í rúmt ár en hefur nú verið gert að rýma húsnæðið fyrir 1. október þar sem til stendur að rífa það. „Við erum alls ekki með nein leiðindi, vissum að það stæði til að rífa húsið og byggja eitthvað nýtt hér á Brynjureitnum, hvort sem það eru nú hótel og túristabúðir, ég bara veit það ekki,“ segir Elín. „Þetta bar bara dálítið bratt að.“
Ferðamenn sækja í íslenska list
Það er félagið Þingvangur sem er eigandi Brynjureitsins og samkvæmt fréttum er meiningin að þar verði íbúðir, hótel, verslanir, veitingasalir og skrifstofur. Listagalleríið Kling og Bang var einnig með húsnæði á reitnum en hefur nú flutt starfsemi sína vegna niðurrifs hússins. Elín segir það undarlega þjónustu við ferðamenn að hrekja gallerí og handverksbúðir úr miðbænum. „Við finnum mjög mikið fyrir því þegar ferðamennirnir koma inn til okkar hvað þeim finnst gaman að geta komið og rætt við listamennina sjálfa um verkin áður en þeir kaupa. Allt sem við seljum er handgert af íslenskum listamönnum og hönnuðum og það er það sem margir ferðamenn eru að sækjast eftir að finna.“
Skrýtið ástand í miðbænum
Elín segist ekki vita hvað sé til ráða en að Skúmaskoti standi kraftmiklar, jákvæðar og bjartsýnar konur sem séu ákveðnar í að finna nýtt húsnæði og halda starfseminni áfram. Stærsta vandamálið sé hvað leiguhúsnæði í miðbænum sé orðið dýrt. „Það er orðið mjög skrýtið ástand hér í miðbænum,“ segir hún. „Maður veit eiginlega ekki hvernig er hægt að bregðast við, eða hver á að bera ábyrgðina. Er það bara eitthvað sem verður að ganga sinn gang að markaðurinn kallar á hótel og túristabúðir akkúrat í augnablikinu og þau fyrirtæki geta líka borgað hæsta leiguverðið. Þurfa aðrir bara að bíða á meðan þessi toppur er að ganga yfir?“
Hættum ekki fyrr en í fulla hnefana
Elín og samstarfskonur hennar í Skúmaskoti eru harðákveðnar í að láta húsnæðismissinn ekki stöðva rekstur gallerísins og hún segir þær opnar fyrir því að skoða alls konar húsnæði. „Við erum búnar að labba upp og niður allan miðbæinn á útkikki eftir húsnæði,“ segir hún. „Höfum meira að segja bankað upp á hjá fólki þar sem við sjáum laust húsnæði og höfum allar klær úti. Við hættum ekki þessari starfsemi fyrr en í fulla hnefana.“
The post Undarlegt að hrekja listamenn úr miðbænum appeared first on Fréttatíminn.