Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Gjaldþrot ferðaskrifstofu Thomas Cook hefur áhrif á um 600.000 ferðamenn

$
0
0

 

Breska ferðaskrifstofan Thomas Cook hefur hætt starfsemi eftir að viðræður um nauðarsamningar gengu ekki upp í nótt og fyrirtækið er þar með komið í þrot. Bresk flugmálayfirvöld hafa tilkynnt að fyrirtækið hafi þegar lagt niður alla starfsemi og öllum ferðum á vegum fyrirtækisins, flugferðum og pakkaferðum, hefur verið aflýst.

Talið er að rúm­lega 150.000 manns séu strandaglóp­ar nú þegar, víða um heim, eft­ir gjaldþrot flug­fé­lags­ins og segja bresk yf­ir­völd þetta mestu mann­flutn­inga á friðar­tím­um í sögunni. Samtals muni gjaldþrotið hafa áhrif á um 600.000 ferðamenn.

Thomas Cook er elsta ferðaskrifstofa heims 178 ára og einnig ein sú stærsta. Um 22.000 manns starfa við hana og þar af um 9.000 í Bretlandi. Rekstur ferðaskrifstofunnar hefur gengið mjög illa og mikið tap hefur verið á rekstrinum. Samkvæmt frétt BBC náðist að tryggja 140 milljarða króna neyðarlán í ágúst en ekki reyndist unnt að afla frekari lána í haust til þess að tryggja áframhaldandi rekstur. Bresk yfirvöld vinna nú hörðum höndum við að koma viðskiptavinum flugfélagsins til síns heima.

The post Gjaldþrot ferðaskrifstofu Thomas Cook hefur áhrif á um 600.000 ferðamenn appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652