Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna ráns ofl.

$
0
0

 

Karlmaður á fertugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 29. október, á grundvelli almannahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu Maðurinn var handtekinn í austurborginni síðdegis í gær eftir að tilkynning barst um rán á bifreið.

Bifreiðin fannst nokkru síðar í Grafarvogi, sem og ökumaðurinn, en áður höfðu borist nokkrar tilkynningar um mjög ógætilegan akstur mannsins. Tveir aðrir voru enn fremur handteknir í þágu rannsóknar málsins, en þeir eru báðir lausir úr haldi lögreglu.

Réðust á mann og rændu bíl hans ofl.

The post Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna ráns ofl. appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652