Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Frumflutningur á Kjarvalsstöðum

$
0
0

Fyrstu tónleikar Elektra Ensemble í vetur fara fram á Kjarvalsstöðum sunnudaginn 20. september, klukkan 20. Yfirskrift tónleikanna, CONTRASTI, er heiti á nýju verki eftir Huga Guðmundsson sem verður frumflutt á tónleikunum. Hugi Guðmundsson er, þrátt fyrir ungan aldur, margverðlaunaður sem tónskáld og hlaut Íslensku Bjartsýnisverðlaunin 2014. Verkið var samið fyrir Elektra Ensemble með styrk frá Musica Nova. Einnig verða flutt á tónleikunum tvö verk eftir franska tónskáldið Olivier Messiaen, Le Merle Noir, þar sem tónskáldið líkir eftir söngi svartþrastarins og Kvartett fyrir endalok tímans. Kvartettinn er eitt af meistaraverkum tónskáldsins en Messiaen samdi hann árið 1940 á meðan hann var í haldi Þjóðverja í fangabúðum í Grölitz í heimsstyrjöldinni síðari.
Flytjendur á tónleikunum eru Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari, Emilía Rós Sigfúsdóttir flautuleikari, Helga Björg Arnardóttir klarínettuleikari, Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðluleikari og Margrét Árnadóttir sellóleikari. Elektra Ensemble var útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar 2009 og gekk í kjölfarið til samstarfs við Listasafn Reykjavíkur um tónleikaröð á Kjarvalsstöðum sem hefur hlotið lof jafnt gesta sem gagnrýnenda.

The post Frumflutningur á Kjarvalsstöðum appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652