Fjölmargir meðlimir Facebook-hópsins Handóðir prjónarar hafa að undanförnu kvartað yfir ofnæmisviðbrögðum við plötulopa frá Ístexi og reynt að krefja fyrirtækið um upplýsingar um efnameðferð hans. Ístex segir ekkert til í þessum aðdróttunum enda sé harðbannað að nota nikkel í litun.
Fyrir skömmu póstaði Inger Rós Jónsdóttir, stofnandi Facebook-síðunnar Handóðir prjónarar, fyrirspurn á síðuna þar sem hún kvartaði yfir ofnæmisviðbrögðum við plötulopa og spurði hvort aðrar prjónakonur hefðu upplifað það sama. Viðbrögðin létu ekki á sér standa, vandamálið er vel þekkt og nokkrar kvennanna kvörtuðu yfir að fá ekki svör um það frá Ístexi hvaða efni væru notuð í meðhöndlun lopans. Flestar þeirra fullyrtu að þær væru ekki með lopaofnæmi en hefðu hins vegar nikkelofnæmi og það var einmitt sú niðurstaða sem Inger Rós fékk þegar hún fór í ofnæmispróf.
„Það kom í ljós að ég hef ekki ofnæmi fyrir lopanum en mældist hins vegar með mikið nikkelofnæmi, sem ég vissi ekki af,“ segir Inger Rós. „Ég er búin að hringja nokkrum sinnum í Ístex til að reyna að fá að vita hvort nikkel sé notað í lituninni á lopanum, en ég fæ engin svör. Mér var vísað frá einum til annars en það var enginn sem gat sagt af eða á um það hvort nikkel væri í litunum.“
„Hulda Hákonardóttir, markaðsstjóri Ístex, segir ekkert hæft í þessum aðdróttunum. „Við fengum póst frá prjónakonu 11. ágúst, en þá var lokað hjá okkur og eftir að hafa rætt við okkar fólk og skoðað málið vel ég svaraði ég honum 9. september,“ segir Hulda. „Við fengum reyndar ekki spurninguna um hvort nikkel væri notað enda er það alveg stranglega bannað. Nikkel er notað í litun á bandi í Kína og Tyrklandi, sem ekki þurfa að hlíta reglum Evrópusambandsins, en við værum að brjóta lög þess ef við notuðum það. Við kaupum okkar litarefni frá aðilum í Bretlandi, Þýskalandi og Sviss og þau eru öll undir Oeko-tex Standard 100 staðli sem er mjög víðtækur í sambandi við svona efni. Þannig að sú hugmynd að það sé nikkel í okkar efnum er röng.“
Hulda segir undarlegt að þessi umræða um ofnæmisviðbrögð sé nánast eingöngu bundin við plötulopann því nákvæmlega sömu litarefnin séu notuð í alla ull hjá Ístexi. „Auðvitað veltum við því fyrir okkur hvað það sé sem veldur þessum ofnæmisviðbrögðum. Plötulopinn er minnst unna varan okkar og ég persónulega tel líklegra að vandamálið sé að plötulopi „ryki“ meira en annað band þar sem hann er ekki spunninn og því bindast hárin ekki eins vel í honum.“
The post Prjónakonur óttast nikkel í plötulopa appeared first on Fréttatíminn.