Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Foreldrarnir ekki með öll svörin

$
0
0

Út eru komnar 5 nýjar barnabækur um dýrin og einnig bók um stafrófið fyrir yngstu kynslóðina. Höfundurinn, Heiða Björk Norðfjörð, er hönnuður að mennt en hefur alltaf verið iðin við það að mála og teikna. Hún skrifaði sögur fyrir yngri systkini sín yngri þegar hún var yngri og ákvað að gera eitthvað við allar hugmyndirnar.

„Ég hef fundið mína hillu í því að teikna fyrir börn,“

Bækurnar um Hönnu hunangsflugu, Frikka fiðrildi, Ása ánamaðk og Kötu könguló, eftir Heiðu Björk Norðfjörð, komu út nýlega hjá bókaforlaginu Skruddu. Einnig kom út bókin Stafrófið, þar sem farið er yfir alla stafina fyrir yngstu kynslóðina. Bækurnar eru litskrúðugar og fallega myndskreyttar af höfundinum sjálfum.
„Ég gaf út bókina um Lalla og litakastalann árið 2012 sem var mín fyrsta bók og eftir hana datt ég einhvernveginn í gírinn og gerði fleiri,“ segir Heiða. „Það hefur alltaf blundað í mér að skrifa. Ég skrifaði fyrir yngri systkini mín og svo hef ég alltaf haft gaman af því að teikna, sérstaklega fyrir krakka. Þeir hafa líka haft gaman af því. Þegar ég gerði fyrstu bókina var ég með vinnuaðstöðu og átti mikið af vatnslitum í öllum litum, og gerði því bók um alla litina. Þannig byrjaði þetta bókaævintýri,“ segir Heiða. „Svo fannst mér þetta bara svo gaman að ég hélt bara áfram og þetta vatt upp á sig. Mér fannst krakkar spyrja alltaf mikið um dýrin, og foreldrarnir eru kannski ekki með öll svörin þannig að mig langaði að hafa þetta fræðandi og um leið skemmtilegt,“ segir hún.
„Þessi dýr, eins og skordýrin, eru öll í okkar náttúru og þetta eru skemmtilegar staðreyndir um þau. Margir krakkar eru stundum hræddir við flugur og köngulær og þá er líka gott að benda á alla jákvæðu hlutina sem tengjast þeim,“ segir Heiða sem útskrifaðist sem hönnuður frá Iðnskólanum í Hafnarfirði árið 2000.
„Ég setti myndirnar úr fyrstu bókinni á sýningu sem heitir „Þetta vilja börnin sjá,“ sem fer í kringum landið. Þetta er sýning þar sem teikningar og myndir úr bókum eftir íslenska höfunda eru til sýnis, og krakkarnir geta skoðað myndirnar um leið og þau skoða bækurnar,“ segir Heiða. „Ég get haldið áfram með dýrin og þetta er orðin hálfgerð sería, og ég hef mikinn áhuga á að gera meira af því. Svo hef ég fleiri hugmyndir á borðinu sem ég get ekki talað mikið um strax, en það kemur að því. Það eru allavega nóg af hugmyndum, það vantar ekkert upp á það,“ segir hún. „Ég hef svo alltaf verið að grúska í myndlistinni með, en finnst eins og ég hafi fundið mína hillu í því að teikna fyrir börn aðallega,“ segir Heiða Björk Norðfjörð, rithöfundur og myndlistarkona.
Bækurnar eru allar komnar í verslanir Máls og menningar og Eymundsson.

5

The post Foreldrarnir ekki með öll svörin appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Trending Articles